Fréttaskýring: Breyting á högum 14% þingmanna

Morgunblaðið Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is
Óvenjulega miklar breytingar hafa orðið á Alþingi á þessu kjörtímabili, sem þó er ekki nema hálfnað. Breyting hefur orðið á högum níu þingmanna, en það eru 14% þeirra sem sitja á þingi.

Alltaf er eitthvað um að þingmenn segi sig úr flokkum eða segi af sér þingmennsku. Mestu breytingarnar urðu á kjörtímabilinu 1995-1999, en þá var verið að stofna Samfylkinguna og VG, en þrír flokkar, Alþýðuflokkurinn, Alþýðubandalagið og Þjóðvaki, voru lagðir niður.

Ýmsar ástæður eru fyrir hræringum á þessu þingi. Þrír þingmenn; Björgvin G. Sigurðsson, Illugi Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, drógu sig tímabundið í hlé frá þingstörfum vegna mála sem tengjast hruninu haustið 2008. Einn þingmaður, Steinunn V. Óskarsdóttir, sagði af sér vegna gagnrýni sem hún varð fyrir vegna fjármögnunar prófkjörsbaráttu.

Ágreiningur um Evrópumál skýrir að stærstum hluta ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar og Guðmundar Steingrímssonar að segja skilið við flokk sinn. Evrópumál, ríkisfjármál og fleira áttu þátt í úrsögn Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG.

Margvíslegur ágreiningur skýrir hins vegar að þingmenn Borgarahreyfingarinnar sögðu sig úr henni og stofnuðu Hreyfinguna. Þráinn Bertelsson átti ekki samleið með öðrum þingmönnum flokksins og gekk í VG. egol@mbl.is

Ekki á leið úr Framsóknarflokknum

Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segist ekki vera á leiðinni úr Framsóknarflokknum og því ekki á leiðinni til samstarfs við þann hóp sem nú undirbýr stofnun nýs stjórnmálaafls sem ætlar að berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Guðmundur Steingrímsson, sem í gær sagði sig úr Framsóknarflokknum og þingflokki hans, er einn þeirra sem undirbúa nú stofnun slíkrar hreyfingar, ásamt ýmsum fyrrverandi framsóknarmönnum, eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær.

Siv sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að vissulega hafi ákveðinnar óánægju gætt innan Framsóknarflokksins frá flokksþingi Framsóknarflokksins nú í vor og nú hafi ýmsir þeirra sem óánægðir hafi verið sagt sig úr flokknum, eins og fram hafi komið undanfarna daga.

„Ég get staðfest það, að ýmsir þeir, sem hafa sagt sig úr flokknum, hafa verið nánir samstarfsmenn mínir og vinir í Framsóknarflokknum um langa hríð,“ sagði Siv. „Ég held að þessi hópur hafi eitthvað verið að hittast að undanförnu, til þess að undirbúa næstu skref, en ég hef ekki tekið þátt í þeim undirbúningi, enda er ég og verð framsóknarmaður. Ég er alls ekki á leiðinni úr Framsóknarflokknum og ætla mér að halda áfram að berjast fyrir mínum áherslum innan flokksins, í Evrópumálum jafnt sem öðrum málum.“

Ekki á leiðinni úr mínum flokki

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er því fylgjandi að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði fram haldið og þeim lokið, segir að hvorki Guðmundur Steingrímsson né aðrir fyrrverandi framsóknarmenn hafi farið þess á leit við sig, að hún gengi til liðs við sig. „Nei, það hefur ekki verið haft samband við mig, enda yrði það algjörlega árangurslaust. Ég er ekki á leiðinni úr mínum flokki,“ sagði Ragnheiður í samtali við Morgunblaðið í gær.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
 
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Styrkir til eflingar starfsmenntunar
Tilkynningar
Styrkir til eflingar starfsmennt...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...