Afkomuviðvörun frá þremur sviðum borgarinnar
Fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar hefur borist afkomuviðvörun vegna ársins 2011 frá Íþrótta- og tómstundasviði, Menntasviði og Leikskólasviði.
Í öllum tilvikum er varað við því að áætlun um hagræðingu í rekstri nái ekki fram að ganga eða henni verði ekki náð að fullu á þessu ári vegna þess að innleiðing á breytingum hefur seinkað miðað við það sem áætlun gerði ráð fyrir, útfærslu hagræðingar hefur verið breytt eða útfærslu ekki lokið.
Þetta kemur fram í minnisblaði með skýrslu fjármálaskrifstofu borgarinnar um 6 mánaða uppgjör borgarinnar, en borgarráð ákvað í dag að gera skýrsluna opinbera.
Í minnisblaðinu segir, að í einhverjum tilvikum sé kostnaður að fara framúr áætlun vegna utanaðkomandi ástæðna og greiðslur ekki að berast frá ríki í samræmi við áætlanir.
Hundruð milljóna útgjöld umfram heimildir
Sviðsstjóri telur stefna í að útgjöld íþrótta- og tómstundasviðs verði að lágmarki um 105 mkr umfram fjárheimildir. Uppgjör fyrir tímabilið janúar–apríl sé þegar farið að sýna ákveðin hættumerki, s.s. tekjutap sundlauga og frístundaheimila m.v. fjárhagsáætlun, þrátt fyrir að sviðið sé undir heimildum í heild sinni á tímabilinu.
Útgjöld menntasviðs stefna að lágmarki í 135 milljónir króna umfram fjárheimildir. Segir í minnisblaðinu, að uppgjör fyrir tímabilið janúar–apríl sé þegar farið að sýna ákveðin hættumerki og sé rekstur sviðsins 123 milljónir yfir fjárheimildum á tímabilinu.
Þá stefnir í að útgjöld leikskólasviðs verði 62 milljónir umfram fjárheimildir. Ástæður vandans eru einkum sagðar þær, að skipulagsbreytingar hafi tafist og sameiningar færri en áætlað var, úthlutunarreglur vegna sérkennslu hafi ekki verið endurskoðaðar eins og til stóð, langtímaveikindi séu meiri og hráefniskostnaður í mötuneytum hafi hækkað og einnig leiga vegna flutninga sviðsins frá Fríkirkjuvegi í Borgartún.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. ágúst 2010, Innlent Fimm ára áætlun í Reykjavík
- Mánudagur, 30. apríl 2012, Innlent 4,7 milljarða halli á borginni
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Laugardagur, 18. júní 2011, Innlent Milljarða framúrkeyrsla
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Draga þarf úr útgjöldum eða auka tekjur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































