Forseti Litháens á Bessastöðum

Forseti Litháens, Dalia Grybauskaitė er í opinberri heimsókn á Íslandi og var á Bessastöðum í ... stækka

Forseti Litháens, Dalia Grybauskaitė er í opinberri heimsókn á Íslandi og var á Bessastöðum í dag. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Dalia Grybauskaitė, forseti Litháens, kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag en á morgun verða liðin nákvæmlega 20 ár frá því að Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna fullt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja.

Í heimsókn forseta Litháens verður þeirra tímamóta minnst með ýmsum hætti, m.a. með sérstakri athöfn í Höfða að morgni föstudagsins 26. ágúst en þar undirrituðu utanríkisráðherrar Eystrasaltsríkjanna og Íslands samkomulag þessa efnis 26. ágúst 1991.

Í fylgdarliði forseta Litháens er Audronius Ažubalis utanríkisráðherra landsins auk embættismanna frá embætti forseta og utanríkisráðuneyti Litháens.

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú tóku á móti Grybauskaitė á Bessastöðum síðdegis í dag að viðstöddum ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands og embættismönnum.

Í kvöld bjóða íslensku forsetahjónin til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum til heiðurs forseta Litháens.

Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík og forseti Íslands standa fyrir athöfn í Höfða í fyrramálið. Meðal dagskrárliða við athöfnina eru ávörp borgarstjórans í Reykjavík og forseta Litháens en jafnframt mun litháski píanóleikarinn Mūza Rubackytė leika verk eftir landa sinn Mikalojus Konstantinas Čiurlionis og Arnór Hannibalsson ræðismaður Litháens á Íslandi taka við heiðursviðurkenningu frá forseta Litháens.

Frá Höfða liggur leiðin í samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð þar sem m.a. Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar, Magnús Tumi Guðmundsson prófessor, Margrét Laxdal varaformaður Landsbjargar og Kjartan Þorkelsson sýslumaður á Holsvelli kynna miðstöðina og viðbrögð við nýlegum eldgosum í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum. Heimsóknin í Skógarhlíð hefst kl. 10:35.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis tekur á móti hinum lithásku gestum í Alþingi klukkan 11:40 og býður þeim til hádegisverðarfundar með fulltrúum stjórnmálaflokka í utanríkismálanefnd.

Forseti Litháens flytur inngangserindi að hringborðsumræðum sem hefjast í Þjóðmenningarhúsinu kl. 13:20. Þátttakendur í umræðunum verða m.a. þingmenn, embættismenn, háskólafólk og fulltrúar félagasamtaka og fjölmiðla. Umræðunum stýrir Þóra Arnórsdóttir fréttamaður. Eftir hringborðsumræðurnar munu forseti Litháens og fylgdarlið skoða handritasýninguna í Þjóðmenningarhúsinu undir leiðsögn Sigurgeirs Steingrímssonar fræðimanns á Árnastofnun.

Forseti Litháens mun opna sýningu í Norræna húsinu kl. 16:30 sem helguð er minningu litháska tónlistar- og myndlistarmannsins Mikalojus Konstantinas Čiurlionis (1875-1911). Við það tækifæri mun Mūza Rubackytė píanóleikari jafnframt flytja verk eftir hann.

Formlegri dagskrá opinberrar heimsóknar forseta Litháens til Íslands lýkur á Þingvöllum að kvöldi föstudagsins 26. ágúst. Eftir skoðunarferð um þjóðgarðinn mun forsetinn eiga fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Í kjölfar fundarins býður forsætisráðherra til kvöldverðar á Þingvöllum.

Áður en forseti Litháens fer af landi brott laugardaginn 27. ágúst mun hún fyrri hluta þess dags heimsækja Hellisheiðarvirkjun og skoða Geysi og Gullfoss, að því er fram kemur á vef forsetaembættisins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Kæliklefar. Frystiklefar. Lausfrystar
Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum. Skammur afhendingartími. Hægt er að fá k...
KÍNVERSKAR SILKIHÆNUR OG ÝMISLEGT FL....
Eigum einungis eftir 2 stk af þessum frábæru fuglum. Báðar hvítar. Seljast á 10 ...
Ný heilsársdekk Cooper M+s Sport fyrir 19" felgur
Er með fjögur heilsársdekk fyrir 19" felgur, Cooper M+s Sport Xl 255/50R19, ná...
Volvo Penta báta vél til sölu.48 hp
Vél í lagi , 48 hestafla nýtekinn úr bát vegna stækkunar á vél ca árg 86 Verð c...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Intellecta
Stjórnunarstörf
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garði La...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...