Stefna að því að setja Íslandsmet í planki
Sigríður Dögg Auðunsdóttir, forstöðumaður kynningarmála hjá Mosfellsbæ, Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, og Daði Þór Einarsson, skipuleggjandi hátíðarinnar planka. mbl.is/Hilmar Gunnarsson
Í túninu heima, bæjarhátíð Mosfellsbæjar, verður haldin í sjöunda sinn dagana 25.-28. ágúst. Meðal nýjunga á hátíðinni í ár eru litboltavöllur og lazer-tag auk þess sem stefnt er á að setja Íslandsmet í planki á setningarhátíðinni á Miðbæjartorgi á föstudagskvöld.
Þá er í fyrsta sinn í ár boðið upp á aðstöðu fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla því nýtt tjaldstæði hefur verið tekið í notkun við Varmárskóla. Ókeypis aðgangur verður að tjaldstæði á bæjarhátíðinni og geta Mosfellingar því hvatt vini og vandamenn nær og fjær til að sækja sig heim og upplifa þessa skemmtilegu hátíð með sér, segir í tilkynningu frá Mosfellsbæ.
Hápunktur hátíðarinnar er að vanda á laugardagskvöld þegar útitónleikarnir fara fram á Miðbæjartorgi. Þar koma fram Sveppi og Villi, Hera Björk, Helgi Björns og Reiðmenn vindanna, Vinir Sjonna og Steindi Jr. ásamt félögum.
Hátíðin hefur göngu sína á fimmtudagskvöld með tónlistardagskrá í Kaffi Álafossi og unglingadansleik í Hlégarði. Brekkusöngurinn á föstudagskvöldinu hefur notið sívaxandi vinsælda. Í fyrra var metþátttaka og hafði bleika hverfið sigur úr býtum í keppninni um bestu mætinguna.
Karnivalskrúðgangan verður með ögn breyttu sniði í ár. Hverfin hittast hvert um sig og ganga að Miðbæjartorgi þar sem setningarhátíðin fer fram. Ný keppnisgrein bætist við í ár: skrautlegasta skrúðgangan.
Útimarkaðir verða að vanda í Álafosskvos og Mosskógum í Mosfellsdal, sýningarbásar verða í Íþróttamiðstöðinni að Varmá og fjölbreytt dagskrá á inni- og útisvæði, tívolí verður við Hlégarðstún og sælkerahátíð í Hlégarði.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 26. ágúst 2011, Innlent Reyna við Íslandsmet í hópplanki
- Föstudagur, 26. ágúst 2011, Innlent 441 plankaði
- Laugardagur, 28. ágúst 2010, Innlent Hátíð í Mosfellsbæ
- Mánudagur, 20. júní 2011, Innlent Sólseturshátíðin haldin í Garði í sjöunda sinn
- Föstudagur, 26. ágúst 2011, Innlent Akureyrarvaka sett í kvöld
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































