Áhugamenn vilja styðja viðgerðir á síldarverksmiðjunni í Djúpavík
„Markmið okkar er að varðveita húsið og við gerum það með öllum tiltækum ráðum,“ segir Héðinn Ásbjörnsson sem ásamt fjölskyldu sinni rekur ferðaþjónustu í Djúpavík á Ströndum. Áhugamenn um varðveislu gömlu síldarverksmiðjunnar vinna að stofnun áhugamannafélags til að styðja við bakið á eigendunum.
Síldarverksmiðjan í Djúpuvík í Reykjarfirði á Ströndum er gríðarmikið mannvirki og merkilegt í byggingarsögunni. Verksmiðjan var byggð 1934 og tekin í notkun árið eftir. Hún var stærsta bygging sem reist hafði verið úr steinsteypu á Íslandi á þeim tíma.
Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að Skúli Alexandersson, fyrrverandi alþingismaður, sem alinn er upp í Djúpavík, hafi áhuga á að stofna áhugamannafélag til að hjálpa til við varðveislu hússins. Héðinn tekur vel í það og segir að öll hjálp sé vel þegin, hvort sem hún sé í formi vinnu eða fjárframlaga.
Sögusýning um Djúpavík er í vélasal verksmiðjunnar og fá margir leiðsögn um hana á sumrin. Segir Héðinn að fólk hafi mikinn áhuga á mannvirkinu. „Það verður að varðveita þetta merka hús en vitaskuld þarf síðan að finna því nútímahlutverk,“ segir Héðinn og bætir við að enginn hörgull sé á hugmyndum um nýtingu þess. Hann nefnir að listafólk hafi notað það til sýningahalds og tónlistarflutnings og vel færi á því að auka það.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. júní 2011, Innlent Skákhátíð á Ströndum
- Laugardagur, 25. febrúar 2012, Innlent Lýsir yfir andstyggð á frumvarpi
- Þriðjudagur, 15. nóvember 2011, Innlent Arkitektafélagið styður Húsafriðunarnefnd
- Þriðjudagur, 10. janúar 2012, Innlent Gamlir garpar sýndir á HM
- Miðvikudagur, 25. apríl 2012, Innlent Gullæði hefur gripið um sig á Íslandi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































