Ók á staur og götuvita

Karlmaður ók á ljósastaur og götuvita á mótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar rétt eftir klukkan 11 í morgun. Hann var einn í bílnum og var fluttur á sjúkrahús með minniháttar meiðsli.

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað um tildrög slyssins. Bíllinn er mikið skemmdur eftir áreksturinn og var fluttur á brott með kranabíl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert