Lán lækkuð um 143,9 milljarða

mbl.is/Arnaldur

Samtök fjármálafyrirtækja segja, að lán heimila hafi í lok júlí verið færð niður um 143,9 milljarða króna frá bankahruni.

Samtökin segjast hafa aflað upplýsinga um stöðu þessara mála hjá aðildarfélögum sínum, Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Þar komi einnig fram að rúmlega 87 þúsund lántakar hafi fengið eða leitað eftir niðurfærslu hjá fjármálafyrirtækjum, Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum á grunni 110% leiðar, sértækrar skuldaaðlögunar og endurútreiknings á gengistryggðum fasteignaveðlánum og bílalánum.

Í lok júlí höfðu um 79.600 mál verið afgreidd og tæplega 1.300 umsóknum verið hafnað hjá lánveitendum. Um 6.200 mál voru enn í vinnslu. Segja samtökin að því sé ljóst að talan 143,9 milljarðar á eftir að hækka þegar úrvinnslu þeirra mála ljúki.

Sótt hafði verið um niðurfærslu rúmlega 13.400 lána á grunni hinnar svokölluðu 110% leiðar. Samþykktar höfðu verið um 7.500 umsóknir, um 1.100 hafnað og tæplega 4.800 umsóknir voru enn í vinnslu. Afgreiðsla þessara mála hefur leitt til niðurfærslu á lánum upp á 18,7 milljarða króna.

Íbúðalánasjóði hafa borist yfir 5.000 umsóknir um 110% leiðina. Íbúðalánasjóður hafði um síðastliðin mánaðarmót samþykkt 632 umsóknir, hafnað 543 og ríflega 3.900 voru í vinnslu. Lán viðskiptavina sjóðsins hafa verið færð niður um rúma 1,6 milljarða króna vegna þessa.

Þá segja Samtök fjármálafyrirtækja, að sambærilegar tölur fyrir lífeyrissjóðina sýni að fjöldi umsókna var hátt í 500. 75 umsóknir höfðu verið samþykktar um mánaðamótin, 210 verið hafnað og 183 voru í vinnslu. Lán viðskiptavina lífeyrissjóða hafi verið færð niður um rúmar 200 milljónir króna.

Rúmlega 1.600 heimili hafa sótt um sértæka skuldaaðlögun. Samþykktar höfðu verið um 820 umsóknir en tæplega 180 verið hafnað, auk þess sem um 600 mál eru enn í vinnslu. Heildarniðurfærsla vegna þessa úrræðis, miðað við júlílok, er tæpir 5,6 milljarðar króna.

Fjármálafyrirtækin hafa lokið endurútreikningi rúmlega 71 þúsund gengistryggðra lána. Þar af eru 11.800 fasteignalán og 59.400 lán vegna bifreiðaviðskipta.

Heildarniðurfærsla fasteignaveðlána vegna endurútreiknings eru tæpir 79 milljarðar króna. Lán vegna bifreiðaviðskipta hafa verið færð niður um 40,6 milljarða króna við endurútreikning.

Samtökin segja að hafa beri í huga þegar þessar tölur séu skoðaðar að lántakar kunni í sumum tilvikum að hafa nýtt sér fleiri en eitt af þeim úrræðum sem staðið hafi til boða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert