Nemendur leita leiða til sátta
Nemendur Kvikmyndaskóla Íslands í setuverkfalli í anddyri mennta- og menningarmálaráðuneytisins í síðustu viku. mbl.is/Kristinn
„Staðan er sú að við höfum sent beiðni til menntamálaráðuneytisins og til stjórnar skólans um að fara að leita einhverra sáttaleiða og jafnvel að fá utanaðkomandi sáttaaðila inn í deiluna. Við viljum náttúrlega fá námið í gang sem fyrst,“ segir Kristmundur Helgi Guðmundsson, fulltrúi nemenda Kvikmyndaskóla Íslands.
„Við vitum ekki hver samskiptin hafa verið milli stjórnar skólans og ráðuneytisins þannig að við sendum ítrekun til að reyna að koma hreyfingu á hlutina,“ segir Kristmundur.
Eru að kanna réttarstöðu sína í erfiðu máli
„Við gáfumst eiginlega upp eftir viku af símtölum og bréfaskiptum við Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmann forsætisráðherra, en Jóhanna hefur ekki viljað tjá sig um þetta mál,“ segir Kristmundur.
Segir hann að nemendur vinni að því að kanna réttarstöðu sína með hjálp lögfræðinga. Þeir séu að skoða málið en engin endanleg svör séu komin í þeim efnum. Ríkisendurskoðun vinni nú að úttekt á skólanum sem að sögn Kristmundar geti í besta falli tekið þrjár vikur en í versta falli 3-4 mánuði. Sú vinna hófst síðasta föstudag. „Núverandi menntamálaráðherra þarf að semja við skólann um starfsemina og það verður ekki gert nema eftir einhverjum ákveðnum forsendum og það væri ekki vitlaust að samningsaðilar byrjuðu á þeirri vinnu sem fyrst,“ segir Kristmundur. Hann segir sorglegt ef nýnemar þurfi að hætta við nám í skólanum þar sem skólastarfið byggist mikið á samstarfi á milli deilda og árganga. Námið muni skerðast verulega án nýrra nemenda.
Vilja kynna eðli og mikilvægi námsins
„Við viljum fara að sjá að fólk tali saman. Forgangurinn er að finna alvöru lausnir,“ segir Kristmundur. „Við erum ekki fólk sem finnst gaman að vera öðru fólki til ama og viljum bara gleðja fólk.“ Þessa daga vinna nemendur að efni sem þeir vonast til að verði sýnt opinberlega en þeir hafa gert samning við RÚV um sýningu mynda í haust.
„Við viljum fá að sýna hvað við getum og fyrir hvað þetta nám stendur. Það hefur vantað rosalega í umræðuna. Við höfum lent í því að verið sé að líkja þessu námi við menntaskólanám því það er á menntaskólastigi en námið er allt annars eðlis,“ segir Kristmundur. mep@mbl.is





































