Fréttaskýring: Stefna að því að hefja jarðvinnu á lóðinni næsta vor
Tillagan gerir ráð fyrir nýbyggingum á Landspítalalóð sem verða samtals 95 þúsund fermetrar að stærð.
Gangi vinna við skipulag lóðar undir nýjan spítala við Hringbraut vel verður hægt að hefja jarðvinnu á lóðinni næsta vor. Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður verkefnisstjórnar um byggingu nýs Landspítala. Formleg kynning á deiliskipulagstillögu er að hefjast, en miðað er við að vinnu við fyrsta áfanga ljúki árið 2017.
Kostnaður við þennan áfanga er áætlaður 40 milljarðar króna, en í þessari tölu er ekki reiknað með breytingum á eldra húsnæði eða kostnaði við tæki. Þá er gert ráð fyrir að Háskóli Íslands fjármagni sínar byggingar með framlagi frá Happdrætti Háskólans.
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, segir alveg skýrt að mikil þörf sé fyrir nýjan spítala. Núverandi byggingar séu orðnar gamlar og henti illa nútímaspítala. Öryggi sjúklinga batni á nýjum spítala, sem verði búinn einmenningsstofum en það dragi úr sýkingarhættu. Aðstaða starfsfólks batni líka mikið og það verði auðveldar að laða til hans hámenntað starfsfólk. Sameining bráðaaðstöðu spítalans á einum stað auki öryggi og stuðli að meiri samfellu í meðferð sjúklinga. Hann segir engan vafa leika á að rekstur spítalans verði ódýrari í nýju húsnæði.
Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor segir að við höfum náð miklum árangri á síðustu árum og það sé mikilvægt að varðveita hann. Við verðum að horfa til framtíðar því það sé ekki nóg að halda áfram að gera eins og við höfum verið að gera. Stöðnun þýði að við drögumst aftur úr í samkeppni, m.a. um starfsfólkið.
15 hektara lóð
Ár er síðan hönnunarhópurinn SPITAL var valinn til að vinna áfram að hönnun spítalans. Nú liggur fyrir tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið, en stærð þess er 15 hektarar. Nýja byggðin á að rísa að mestu á suðurhluta lóðarinnar, en þar verða meðferðar- og bráðakjarni, rannsóknarhús, dag- og göngudeildir, sjúkrahótel og húsnæði heilbrigðisvísindasviðs HÍ.
Á miðri lóðinni, framan við gamla Landspítalann, verður aðaltorg svæðisins sem fengið hefur nafnið Sóleyjartorg.
Aðkoma að svæðinu verður bæði frá Hringbraut um Barónsstíg og um Snorrabraut frá Bústaðavegi og Miklubraut. Áhersla er lögð á að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfi, efla sjálfbæran samgöngumáta og almenningssamgöngur, hvetja til hjólreiða og göngu með góðum aðbúnaði en miða einkabílanotkun fyrst og fremst við þarfir sjúklinga og þeirra sem þurfa á þjónustu spítalans að halda.
Byggingarnar næst gömlu Hringbrautinni verða í sömu hæð og gamla aðalbygging Landspítalans sem tekin var í notkun árið 1930. Byggingar sem eru fjær, þ.e. næst nýju Hringbrautinni, verða lægri. Gert er ráð fyrir þyrlupalli uppi á einni byggingunni og brú af henni beint inn á bráðamóttöku. Tillaga er gerð um að sjúkrahótel verði reist norðvestan við gamla spítalann. Reiknað er með að byggingar gamla spítalans verði nýttar að hluta sem legurými fyrir sjúklinga og undir skrifstofur meðan verið er að klára allar nýbyggingar. Þegar spítalinn verður fullbyggður er reiknað með að byggingarnar verði nýttar undir skrifstofur og þjónustu- og stoðdeildir.
Gert er ráð fyrir að neðanjarðargangar verði frá öllu byggingum spítalans. Þessir gangar verði m.a. nýttir til að flytja lín og sorp frá deildum spítalans.
Stærri en þrjár Hörpur
Byggingarmagn á Landspítalalóð er núna 76 þúsund fermetrar. Tillagan gerir ráð fyrir að í fyrsta áfanga, sem gert er ráð fyrir að verði lokið árið 2017, verði stærð nýbygginga 95 þúsund fermetrar. Þess má geta að Tónlistarhúsið Harpa er 28 þúsund fermetrar. Það er því rætt um að byggja húsnæði við Hringbraut sem samsvarar þremur og hálfri Hörpu.
Starfsemi Landspítala fer nú fram á 17 stöðum í nærri 100 húsum. Með uppbyggingunni við Hringbraut er ætlunin að sameina alla bráðastarfsemi sem rekin er við Hringbraut og í Fossvogi.
Lífeyrissjóðirnir og stjórnvöld hafa undirritað viljayfirlýsingu um að lífeyrissjóðirnir sjái um að fjármagna framkvæmdir. Sjóðirnir munu síðan taka veð í húsunum og ríkið greiðir niður lánin á 30-40 árum. Ríkissjóður mun því eignast húsin.





































