Dæmdur í árs fangelsi
Nítján ára gamall piltur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í eins árs fangelsi fyrir tilraun til bankaráns, þjófnað, hylmingu, fjársvik og umferðarbrot.
Um fjölmörg mál er að ræða en pilturinn var meðal annars dæmdur fyrir stuld á samloku og kókflösku, farsíma og bifreiðum. Hann var jafnframt dæmdur fyrir akstur undir áhrifum eiturlyfja, tilraun til fjársvika og svo mætti lengi telja.
Í janúar reyndi hann bankarán í útibúi Arion banka í Árbæ er hann kom inn í bankann með andlitið hulið, vopnaður steinhellu, skipaði gjaldkera að afhenda sér peninga og henti á sama tíma steinhellunni í gler á næstu gjaldkerastúku, með þeim afleiðingum að glerið brotnaði, en hann hvarf á braut þegar gjaldkerinn tjáði honum að hann hefði enga peninga til að afhenda honum.
Pilturinn játaði skýlaust brot sín en samkvæmt sakavottorði hófst brotaferill hans um 16 ára aldur eða árið 2008, en þá var ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað.
Hann var aftur dæmdur á sama ári fyrir brot gegn valdstjórninni en ekki gerð sérstök refsing.
Á árinu 2009 var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir rán, brot gegn valdstjórninni, líkamsárás og þjófnað. Á árinu 2010 var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þjófnað, brot gegn valdstjórninni, nytjastuld og brot gegn umferðarlögum. Hann var 4. febrúar 2011 dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Loks var honum 22. mars 2011 ekki gerð sérstök refsing í dómi fyrir þjófnað og nytjastuld.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. júní 2011, Innlent Þriggja mánaða fangelsi
- Fimmtudagur, 29. mars 2012, Innlent Fangelsi fyrir fjölda brota
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir 2 líkamsárásir
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnað
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Dómur tvöfalt lengri í Hæstarétti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































