Tundurdufl reyndist vera bauja
Landhelgisgæslunni barst í sl. viku tilkynning frá lögreglunni á Egilsstöðum um grunsamlegan hlut sem fannst á Héraðssandi. Talið var að um væri að ræða tundurdufl, þar sem mikið hefur verið af þeim á þessu svæði í gegnum tíðina. Meðal annars var þremur duflum eytt af þessu svæði í fyrra.
Þegar sprengjusveit Landhelgisgæslunnar kom á staðinn og hafði grafið upp hlutinn kom í ljós að ekki var um að ræða tundurdufl heldur var þetta einhverskonar flotbauja sem að sögn sérfræðinga sprengjusveitar gæti hafa verið notuð í rússneskar tundurduflagirðingar.
Fundu þrjú tundurdufl í sömu ferð
Baujan var svo opnuð með sprengiefni til að ganga úr skugga um að hún væri tóm og engin hætta stafaði af henni. Að því loknu fundust þrjú tundurdufl á svæðinu, voru þau grafin upp úr sandinum. Reyndust þau öll vera án sprengiefnahleðslu, segir á vef Landhelgisgæslunnar.
Ekki var verkefnum þeirra þá lokið á Austurlandi því þegar sprengjusveitin var á leið til Reykjavíkur, yfir Öxi, tóku þeir eftir tveimur vírum sem stóðu upp úr gamalli borholu í bergi rétt áður en komið var að Innri Víná. Voru vírarnir staðsettir u.þ.b. tvo metra frá veginum. Var lögreglan á Egilsstöðum kölluð til og lokaði hún veginum á meðan sprengjusérfræðingar LHG sprengdu holuna og grjótið var hreinsað af veginum. Tengdist borholan framkvæmdum sem áttu sér stað á svæðinu fyrir nokkrum árum þegar nýr vegur var lagður yfir Öxi.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. janúar 2012, Innlent Eyddu tundurdufli
- Fimmtudagur, 3. febrúar 2011, Innlent Tundurduflum eytt
- Miðvikudagur, 11. apríl 2012, Innlent Íbúar urðu varir við hvellinn
- Föstudagur, 6. janúar 2012, Innlent Sprengja tundurdufl í sandinum
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Tilkynnt um tundurdufl
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































