Alvarlegt slys í tívolíinu

Það var ýmislegt sem bar fyrir augum gesta á Ljósanótt …
Það var ýmislegt sem bar fyrir augum gesta á Ljósanótt í dag. Ljósmynd/Víkurfréttir

Níu ára gömul stúlka hlaut opið beinbrot og ljótan áverka þegar hún festi handlegg í tívolítæki á Ljósanótt í Reykjanesbæ í dag. Stúlkan var flutt með hraði til aðgerðar í Reykjavíkur.

Það er vefur Víkurfrétta sem segir frá slysinu en þar kemur fram að leiktækið hafi verið tekið úr umferð um stund en síðan gangsett á ný eftir breytingar.

Að sögn læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi er líðan stúlkunnar eftir atvikum en hún er nú í aðgerð.

Mjög margir hafa lagt leið sína í Reykjanesbæ í dag, en að sögn lögreglu hefur dagurinn gengið vel fram að þessu þó að mikið hafi verið að gera. Mikil umferð bíla er í bænum og  lögregla leggur áherslu á að fólk geri sér grein fyrir að það taki tíma fyrir fólk að komast leiðar sinnar þegar svo margir séu í bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert