Ögmundur svarar Brynjari

Ögmundur Jónasson stækka

Ögmundur Jónasson Eggert Jóhannesson

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kveðst á heimasíðu sinni ósammála skrifum Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Íslands, um vörslusviptingar. Ráðherrann sakar formanninn um aðdróttanir með þeirri fullyrðingu að hækkun á dómsmálagjöldum réttlæti að fara framhjá lögum í innheimtuaðgerðum.

Pistill Ögmundar er svohljóðandi:

„Í tilefni af umfjöllun um vörslusviptingar ritar Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, langa grein á vefmiðlinn Pressuna um aðfarahæfi. Þar vekur hann sérstaka athygli á þeim kostnaði sem fylgir því að fara að lögum og segir:

„Þegar fjármögnunarfyrirtækjum er með ólögmætum hætti aftrað frá því að nýta samningsbundinn rétt sinn leggst aukinn kostnaður á innheimtu kröfunnar, enda hafa réttargjöld verið hækkuð mjög rækilega að undanförnu eins og innanríkisráðuneytinu er fullkunnugt um. Þessi kostnaður sem nemur tugum þúsunda leggst til viðbótar á kröfuna og hækkar þannig skuld greiðandans. Vandinn er hins vegar sá að þeir sem leika þann leik að neita að afhenda bifreiðina þrátt fyrir vanefndir eru oftast ekki borgunarmenn fyrir þeim viðbótarkostnaði. Slíkur kostnaður kemur því fram sem tjón fjármálafyrirtækisins sem leiðir til hærri vaxtagreiðslna þeirra sem standa í skilum.““

„Handrukkurum að skapi“

Ögmundur gefur lítið fyrir gagnrýni Brynjars.

„Þessi lógík er handrukkurum og ofbeldismönnum eflaust að skapi, en ekki okkur hinum sem viljum heldur að ágreiningsmál séu leyst með aðstoð réttarvörslukerfsins. Með rökfræði Brynjars mætti hins vegar afnema réttarríkið í heild sinni, enda fylgir því umtalsverður kostnaður sem við berum öll saman, óháð því hvort við þurfum nokkurn tímann að leita til dómstóla.

Brynjar velur - og er það væntanlega með ráðum gert - að skauta alfarið framhjá þeirri staðreynd að vörslusviptingarmenn hafa ekki heimild til að beita valdi, sama hversu hagkvæmt þeim kann að þykja það gagnvart eigin buddu eða annarra. Löggjöfin er alveg skýr í þessu sambandi. Sá sem telur sig eiga rétt til eignar sem er í vörslu annars manns þarf að leita til opinbers aðila og færa sönnur á rétt sinn. Dómari tekur síðan afstöðu til þess hvort beiðnin er réttmæt. Það skal hins vegar undirstrikað að gerðarbeiðanda er óheimilt að taka eign í sína vörslu þar til leyst hefur verið úr ágreiningnum fyrir dómi.

Lögreglan ein hefur heimild til valdbeitingar og þeirri heimild fylgir rík ábyrgð. Öllum má vera ljóst - og vonandi einnig formanni Lögmannafélags Íslands - að það myndi leiða til lögleysu og óreiðu ef ekki giltu skýrar reglur í þessum efnum.

Mín skoðun er sú að heimildir til valdbeitingar eigi að vera skýrar og þröngar, þannig að löggæslumenn eigi auðveldara með að meta heimildir sínar, í stað þess að gera þá að dómurum í oft flóknum ágreiningsmálum. Þá er hitt engin lausn falin í því að framselja heimild til valdbeitingar til hópa innheimtumanna eða einkarekinna rukkara. Slíkt er í andstöðu við reglur réttarríkisins sem ég trúi að okkur Brynjari Níelssyni, formanni Lögmannafélags Íslands, sé báðum umhugað um að halda í heiðri,“ skrifar Ögmundur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »
Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
Lenovo spjaldtölva "7 skjár - ný
Til sölu Lenovo spjaldtölva með 7"skjá, 512 MB minni, 16GB disks og Android stýr...
125 cc PitBike
Til sölu lítið notað X-motos PitBike árg. 2008. verð 70 þús! Baldur 848-6972...
HONDA CR-V STW
Honda CR-V STW 4WD RVI , 1998, ekinn 223 þús. Ssk, dráttarkr...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...