Ólafur Ragnar skipti um skoðun
Ólafur Ragnar Grímsson lýsti mikilli andstöðu við kaup útlendinga á landi á Íslandi árið 1991 þegar EES-samningurinn var til umræðu. Hann sagði hins vegar í samtali við Financial Times í gær að hann fagnaði kaupum kínversks fjárfestis á Grímstöðum á Fjöllum.
Þegar EES-samningurinn var til umræðu varð nokkur umræða um að samningurinn opnaði fyrir þann möguleika að útlendingar gætu keypt jarðir á Íslandi. Ólafur Ragnar var þá formaður Alþýðubandalagsins og lýsti mikilli andstöðu við þetta.
„Alþýðuflokkurinn hefur verið fylgjandi því að útlendingar ættu að hafa sama rétt og Íslendingar til að gerast bændur og kaupa jarðir hér á landi. Alþýðubandalagið hefur algerlega hafnað þessu innan ríkisstjórnarinnar, og Jón Baldvin [Hannibalsson] er mætavel kunnugt um það að ég mun aldrei samþykkja samning sem felur í sér að útlendingar geta keypt Laxá í Aðaldal eða Hvamm í Dölum,“ sagði Ólafur Ragnar í samtali við Þjóðviljann 13. apríl 1991.
Halldór Blöndal, þáverandi landbúnaðarráðherra, lýsti sömu viðhorfum í þingræðu um málið og nefndi þá Hvamm í Dölum sem dæmi um jarðir sem ekki mættu komast í eigu útlendinga. Halldór ítrekaði efasemdir sínar um að útlendingar fengu að eignast jarðir í grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið í vikunni.
Ólafur Ragnar virðist hins vegar hafa skipt um skoðun því hann fagnaði áhuga Huangs Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum í samtali við Financial Times. „Kínverjar og Indverjar réttu Íslandi hjálparhönd á margan uppbyggjandi hátt á meðan Evrópa var fjandsamleg og Bandaríkjamenn ekki til staðar,“ hefur blaðið eftir forsetanum.
Ólafur Ragnar sagðist ekki telja ástæðu til þess að óttast fjárfestingar Kínverja á Íslandi á meðan þær sættu nákvæmri skoðun og fagnaði áhuga Kínverja og Indverja á landinu á sama tíma og samskipti við hefðbundna bandamenn í NATO væru orðin stirðari.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Ólafur Ragnar skipti um skoðun/er það nokkuð til nem góðs ... -
Einar Karl Næsti Forseti -
Hörður Þórðarson Undarleg umræða. Eru kínverjar herraþjóð? -
Sigurður Jónsson Ólafur Ragnar var á móti útlendingum en vill núna Kínverja. -
Sigurður Haraldsson Getum við treyst Ólafi? -
Viggó Jörgensson Eru það einhverjar fréttir? -
Eyjólfur Jónsson Má svo vera, en.... -
Valdimar Samúelsson Getum við ekki selt alþingi fyrst á undan lendum okkar. -
Benedikt V. Warén Það er þroskamerki að geta skipt um skoðun... -
Axel Jóhann Axelsson Skipt um skoðun eða skoðanaskipti -
Innlent »
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 27. ágúst 2011, Innlent „Sumar jarðir virðast heilagri en aðrar“
- Föstudagur, 2. september 2011, Innlent Fagnar kínverskum fjárfestingum
- Sunnudagur, 4. september 2011, Innlent Óeðlilegt að geta keypt stórar jarðir
- Laugardagur, 3. september 2011, Innlent Lilja gagnrýnir forsetann
- Föstudagur, 18. nóvember 2011, Innlent Fyrsta verk að lækka skatta
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































