Að hámarki 700 MW til ráðstöfunar á næstu árum
Neðri hluti Þjórsár. www.mats.is
Af þeim 1.500 megavöttum sem fara í nýtingarflokk samkvæmt þingsályktunartillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúruauðlinda. eru að hámarki 700 megavött því stigi að hægt væri að gera samninga um sölu innan tveggja ára. Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja bendir á þetta í umsögn sinni um tillöguna.
Í umsögninni segir að samkvæmt tillögunni fari 25,6% áætlaðrar orkuvinnslugetu í nýtingarflokk, eða 11.900 GWh, sem samsvarar tæpum 1.500 MW í áætluðu uppsettu afli. Virkjanakostirnir í nýtingarflokki séu mjög mislangt komnir í undirbúningi og mati á umhverfisáhrifum og því breytilegt hvenær þeir geta komið til framkvæmda. Einnig sé yfirleitt nauðsynlegt að nýta jarðhitasvæði í áföngum og óvissan um orkugetu þeirra sé ávallt mikil þar til búið er að rannsaka svæðin með borunum.
Vekur Samorka athygli á því að af þeim orkukostum sem standa að baki þessum tæplega 1.500 megavöttum í nýtingarflokki séu nú að hámarki um 700 megavött á því stigi að hægt væri að gera samninga um sölu á orkunni innan tveggja ára miðað við hugsanlega afhendingu innan 4-6 ára.
Er þá horft til virkjana við neðri hluta Þjórsár, í Hverahlíð, til stækkaðrar Reykjanesvirkjunar, Þeistareykja (m.v. 90 MW) og Bjarnarflags, auk e.t.v. Eldvarpa og Sveifluháls, sem þó eru mun styttra komnar á undirbúningsstigi en hinar framantöldu.
Nokkrir stórir og hagkvæmir virkjanakostir séu í tillögunni settir í verndarflokk, m.a. kostir sem hafa þegar verið rannsakaðir nokkuð ítarlega, svo sem Bitra og Norðlingaölduveita. Einhverjir slíkir eru jafnframt settir þarna í biðflokk, svo sem Trölladyngja, Hólmsárvirkjun og Búlandsvirkjun.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. maí 2012, Innlent Segja ráðherra ekki fara að lögum
- Föstudagur, 11. maí 2012, Innlent 200 umsagnir um orkunýtingaráætlun
- Fimmtudagur, 22. desember 2011, Innlent Tvöföldun án nægjanlegs tilefnis
- Laugardagur, 27. ágúst 2011, Innlent Virkjanir í Þjórsá verði fluttar í biðflokk
- Laugardagur, 1. október 2011, Innlent Sleggjan framleiðir rafmagn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































