Fréttaskýring: Stigi hægt til jarðar á Fjöllum
Skoðanir innan stjórnmálaflokkanna um fyrirhuguð kaup Huang Nabo á Grímsstöðum á Fjöllum eru skiptar. Almennt eru stjórnmálamenn sammála um að það þurfi að fara varlega en setja misjafnlega mikla fyrirvara.
„Það er bæði sjálfsagt og nauðsynlegt að greiða fyrir erlendri fjárfestingu á Íslandi. Vilji menn reisa hótel og fara í ferðaþjónustu ber að fagna því. En er það sjálfsagt og eðlilegt að menn geti keypt stórar jarðir og jafnvel hundruð ferkílómetra lands? Það finnst mér ekki,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni á sunnudaginn.
Bjarni sagði ennfremur að eitt af því sem horfa yrði til væri hvort íslenskir ríkisborgarar nytu sömu réttinda í heimaríki viðkomandi.
Ástæðulaus ótti til þessa
„Ef þetta mál er eins og því er lýst, það er felur í sér yfir 20 milljarða króna fjárfestingu í ferðaþjónustu, þá auðvitað hljómar það vel,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Hann segir að margir hafi óttast að erlendir ríkisborgarar myndu kaupa mikið af jörðum hér í gegnum EES-samninginn en af því hafi þó ekki orðið í þeim mæli sem óttast hafi verið. Ef það væri að breytast væri það hins vegar áhyggjuefni. „Það væri auðvitað ekki æskilegt að erlendir ríkisborgarar eignuðust stóran hluta landsins og náttúruauðlindir,“ segir Sigmundur og bætir við að rétt sé að nota þetta mál til þess að fara yfir það með hvaða hætti eigi að halda á málum sem þessu til framtíðar.
Undanþága óforsvaranleg
Í umræðum á Alþingi í gær sagði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að óforsvaranlegt væri að veita Huang undanþágu til þess að kaupa Grímsstaði. Þá meðal annars vegna þess að endurskoðun á löggjöf landsins um vatnsréttindi hefði ekki farið fram. Lagði Guðfríður áherslu á að mikilvægt væri að styrkja með öllum ráðum þjóðareign á auðlindum.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, sagði í samtali við Stöð 2 fyrir helgi að Íslendingar þyrftu að fara varlega þegar kæmi að erlendum fjárfestum en það væri eftir sem áður mikilvægt að bjóða slíka aðila velkomna til landsins. Þá sagði hann mikilvægt að meta fjárfestingar erlendra aðila á efnislegum og sanngjörnum forsendum.





































