Makríllinn með góðan hitamæli
„Makríllinn virðist bara vera í heitari sjó, þar sem sjávarhitinn nær 12 stigum. Norður á Breiðafirði þar sem eru 11 stig þýðir ekki að reyna. Fiskurinn virðist næmur á þetta, vera með góðan hitamæli,“ segir Kristinn Jón Friðþjófsson, útgerðarmaður á Rifi, sem í sumar hefur gert út smábáta á makríl.
Makríllinn er enn á Breiðafirði. Nokkrir smábátar voru gerðir út til færaveiða í sumar og nú er að minnsta kosti einn eftir, bátur sem Sjávariðjan Rifi hf. gerir út. Báturinn hefur mest verið við Öndverðarnes og suður undir Lóndranga.
„Það var ágætt í gær en í dag er kominn kaldi,“ segir Kristinn Jón og reiknar ekki með miklum árangri í dag. Sjávariðjan gerði út tvo báta á makríl í sumar og Kristinn segist ætla að halda öðrum þeirra til veiða eins lengi og eitthvað fáist. Það vill hann gera til að læra betur á veiðarnar og sjá hvenær makríllinn hverfur. Í fyrra hætti makríll að veiðast í lok ágúst á þessum slóðum.
Skapar verkefni fyrir mannskapinn
„Þetta skapar verkefni fyrir mannskapinn á sumrin, bæði á landi og sjó,“ segir Kristinn Jón. Hann telur nauðsynlegt að vera með eigin vinnslu til að hægt sé að stunda veiðarnar því makríllinn er svo feitur fiskur að hann skemmist ef hann er ekki unninn strax daginn eftir að hann er veiddur.
„Hann er í átu, eins og síldin, og étur alla smásíld sem hann kemst í. Ég er sannfærður um að hann er að hreinsa svæðið upp af síld og drepa allt frá fuglinum,“ segir Kristinn um átuna en tekur fram að lítið hafi fundist af slíku í þeim fiski sem kemur til vinnslu í Sjávariðjunni.
Hluti aflans er flakaður í Sjávariðjunni og hluti er heilfrystur. Ekki er búið að selja allan afla sumarsins. Kristinn Jón reiknar með að nota hluta heilfrysta makrílsins í beitu. Þá séu flökin seld í reyk.
„Þessi fiskur er svo óútreiknanlegur að ekki þýðir að treysta á það. Hann hefur þó verið hér í tvö ár, eða þrjú,“ segir Kristinn Jón um framtíðarhorfur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 12. ágúst 2011, Innlent Hvalur elti makríl í Viðey
- Laugardagur, 28. apríl 2012, Innlent Vart búist við að verð hækki
- Þriðjudagur, 14. febrúar 2012, Innlent Friðrik J.: Fundað um makríl í dag
- Þriðjudagur, 17. maí 2011, Innlent Síldin virðist seinna á ferðinni
- Föstudagur, 22. júlí 2011, Innlent Makríllinn streymir inn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































