Dottaði undir stýri

Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi …
Betur fór en á horfðist þegar bíll valt á Suðurlandsvegi í gær. www.lrh.is

Bíll valt á Suðurlandsvegi um miðjan dag í gær. Ökumanninn sakaði ekki, eftir því sem best er vitað, en undir stýri var kona á sextugsaldri. Talið er að hún hafi sofnað við aksturinn, að sögn lögreglunnar.

„Óhappið minnir okkur á mikilvægi þess að ökumenn hafi einbeitinguna í lagi. Sæki að þeim syfja eða þreyta er nauðsynlegt að gera hlé á akstrinum og halda síðan ferðinni áfram þegar viðkomandi ökumaður hefur náð að hvílast. Sé það ekki gert kann að fara mjög illa,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert