Leynimakk með Magma Energy

Ross Beaty (í miðjunni) fundar með Steingrími J. Sigfússyni.
Ross Beaty (í miðjunni) fundar með Steingrími J. Sigfússyni.

Ljóst er að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra beitti áhrifum sínum strax í ágúst 2009 til þess að tryggja að ekkert yrði af byggingu álvers Norðuráls í Helguvík.

Í fréttaskýringu um mál þetta í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag kemur fram, að Steingrímur J. samdi m.a. við Ross Beaty, forstjóra og stjórnarformann Magma, um að félag hans gæti eignast helming í HS Orku og að HS Orka myndi leita leiða til þess að auka fjölbreytileika í viðskiptamannahópi sínum.

Þetta sýna gögn sem tekin hafa verið saman í fjármálaráðuneytinu og varða samskipti hins opinbera við Magma, HS Orku, Geysi Green, Norðurál, Íslandsbanka og sveitarstjórnir á Suðurnesjum og afhent hafa verið hagsmunaaðilum með vísan til upplýsingalaga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert