Norrænir öldungar tefla
Norðurlandamót öldunga í skák fer fram í fyrsta skipti hérlendis núna í september. Mótið hefst laugardaginn 10. september og lýkur hinn 18. september. Friðrik Ólafsson stórmeistari er í hópi keppenda.
Teflt verður í skákmiðstöðinni, Faxafeni 12, að því er segir í tilkynningu frá Skáksambandinu. „Mótið er í senn það langsterkasta og fjölmennasta frá upphafi en fyrsta NM öldunga var haldið 1999 í Karlstad í Svíþjóð á 100 ára afmælisári Skáksambands Norðurlanda og hefur verið haldið á tveggja ári fresti síðan.
Svandís Svavarsdóttir, starfandi menntamálaráðherra, setur mótið og mun leika fyrsta leikinn í skák Friðriks en umferðin hefst kl. 14.
Til leiks eru skráðir 55 keppendur og þar á meðal þrír stórmeistarar. Þar ber nafn Friðriks Ólafssonar langhæst en þetta er í fyrsta skipti sem Friðrik teflir á kappskákmóti hérlendis síðan 2002 þegar hann tók þátt í minningarmóti Jóhanns Þóris Jónssonar og stóð sig þar afar vel.
Einnig taka þátt finnsku stórmeistararnir Yrjo Rantanen og Heikki Westerinen. Sá síðarnefndi er margfaldur Norðurlandameistari öldunga, hefur titil að verja og reyndar sá skákmaður í heiminum sem teflt hefur á flestum Ólympíuskákmótum. Danski skákmaðurinn Jörn Sloth tekur einnig þátt en hann er fyrrverandi heimsmeistari í bréfskák.
Margir öflugir og sterkir skákmenn eru einnig í heimavarnarliðinu. Fyrir utan Friðrik taka þátt tveir fyrrverandi Íslandsmeistarar, Gunnar Kr. Gunnarsson og Björn Þorsteinsson. Einnig má nefna Magnús Sólmundarson, Braga Halldórsson, Júlíus Friðjónsson, Jón Þ. Þór, Ólaf Kristjánsson, Þór Valtýsson og Jóhann Örn Sigurjónsson.
Öldungaskák hefur vaxið mikið hérlendis og erlendis síðustu ár og er þá átt við karla 60 ára og eldri og konur yfir fimmtugt. Það er fagnaðarefni að nú er teflt vikulega í mörgum öldungaklúbbum hér enda sannað mál að skák er heilsubót, ekki síst fyrir eldri borgara.
Teflt verður daglega og hefjast umferðir kl. 14 með einni undantekningu. Átta skákir í hverri umferð verða sýndar beint á netinu. Best er að fylgjast með gangi mála á www.skak.is.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 24. ágúst 2010, Innlent Norðurlandamót í skák
- Laugardagur, 10. september 2011, Innlent Mótið það fjölmennasta og sterkasta
- Miðvikudagur, 14. september 2011, Innlent Bragi efstur á NM öldunga
- Sunnudagur, 19. desember 2010, Innlent Sterkt Íslandsmót í hraðskák
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Íslandsmótið í skák hefst í dag
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































