Álseyingar sem sjá um Lundaballið 2011 í Vestmannaeyjum nota ýmsar aðferðir til að auglýsa það, eins og meðal annars má sjá á myndinni sem birt var á vef Eyjafrétta. Þó er enn vika í ballið.
Þeir hafa sent frá sér lag af þessu tilefni. Það er lagið Gestalistinn eftir Ingó Veðurguð en textanum hafa þeir snarað yfir á mál innfæddra. Synir Álseyjar flytja lagið.