Hafna tillögu ráðherra
„Okkur líst mjög illa á þetta. Íbúar og sveitarfélögin á Vestfjörðum hafa hafnað þessari leið ítrekað,“ segir Ingimundur Óðinn Sverrisson, forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar, um þá tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að endurbæta núverandi veg um Hjallaháls og Ódrjúgsháls.
Innanríkisráðherra hefur kallað fulltrúa Vestfirðinga og nokkurra stofnana á fundi að undanförnu til að reyna að finna lausnir á tengingu sunnanverðra Vestfjarða við þjóðvegakerfið. Vegagerðin lagði á sínum tíma til að farin yrði ný leið yfir Djúpafjörð og Gufufjörð, svokölluð B-leið. Landeigendur í Teigsskógi mótmæltu og að lokum ógilti Hæstiréttur úrskurð umhverfisráðherra vegna galla á umhverfismati.
Á fundi með samráðshópnum sl. föstudag lagði Ögmundur Jónasson til að farin yrði svokölluð D-leið sem felst meðal annars í því að vegurinn um Hjallaháls og Ódrjúgsháls verður lagaður. Jafnframt lýsir hann yfir stuðningi við að jarðgöng undir Hjallaháls verði sett í samgönguáætlun sem gilda á til 2022.
„Þetta er ekki það sem við viljum og langt í frá að hægt sé að kalla þetta samráð,“ segir Ingimundur Óðinn. „Þetta er bara endurvinnsla á gömlum hugmyndum sem búið er að hafna. Við höfum ekkert umboð íbúa til að gera málamiðlun um láglendisleið,“ segir hann.
Spurður hvaða kostir séu í stöðunni með láglendisleið segir Ingimundur Óðinn að þeir geri ekki upp á milli leiða sem tryggi styttingu leiðar og lagningu öruggs vegar á láglendi. Bendir hann á að Vestfirðingar hafi stutt tillögur Vegagerðarinnar um svokallaða B-leið en útiloki ekki aðrar leiðir sem geri sama gagn.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Heiðarsson Kaldar kveðjur -
Haraldur Haraldsson Hafna tillögu ráðherra/þessi tillaga er arfavitlaus,og ekkert vit í henni ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 28. janúar 2012, Innlent Forseti hættir í bæjarstjórn
- Mánudagur, 12. september 2011, Innlent Segja ráðherra ganga gegn vilja íbúa
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Íslendingar hafna Kínverjum
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent Fór ráðherrann framhjá vegalögum?
- Laugardagur, 26. nóvember 2011, Innlent Huang snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































