Hestur sló mann í höfuðið

Hestamenn.
Hestamenn. mbl/ÞÖK

Maður slasaðist í Þjórsárdal í dag þegar hestur sló hann í höfuðið. Lögregla og sjúkralið var kallað á vettvang og var maðurinn fluttur á sjúkrahús á Selfossi.

Fjallmenn voru á leið á afrétt og höfðu áð þegar slysið varð, um klukkan hálfsjö í kvöld. Maðurinn fékk slæman skurð á höfuð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert