Ræddu við Bandaríkjamenn um hvalveiðar
Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu, og Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Íslands í Washington, áttu á föstudag fundi í Washington með bandaríska utanríkisráðuneytinu og starfsmönnum beggja öldungadeildarþingmanna Alaska, Lisu Murkowski og Mark Begich.
Að sögn íslenska sjávarútvegsráðuneytisins var markmiðið með fundunum að bregðast við staðfestingarkæru viðskiptaráðherra Bandaríkjanna á hendur Íslandi vegna hvalveiða, sem gefin var út í júlí og upplýsa bandarísk stjórnvöld og þingmenn um stefnu Íslands í hvalveiðimálum. Bandaríkjaforseti þarf að tilkynna Bandaríkjaþingi fyrir 17. september hvort hann hyggist grípa til aðgerða gegn Íslendingum.
Á fundunum var lögð á það áhersla af Íslands hálfu að hvalveiðar Íslendinga væru fyllilega löglegar og alþjóðleg viðskipti þeirra með hvalaafurðir í fullu samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Jafnframt var undirstrikað að veiðar á hrefnu og langreyði væru sjálfbærar og byggðar á traustum vísindalegum grundvelli. Í ljósi alls þessa var lýst undrun á útnefningu Íslands samkvæmt Pelly-ákvæðinu, enda væri hvorki lagalegur né vísindalegur grundvöllur fyrir henni og þeim aðgerðum sem lagðar hefðu verið til gegn Íslandi.
Fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins, að fulltrúar Íslands bentu á að bandarísk stjórnvöld væru ekki sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýndu annars vegar veiðar Íslendinga á langreyði en leituðu hins vegar eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við veiðar Bandaríkjamanna á norðhval frá Alaska.
Ráðuneytið segir, að fyrir liggi að langreyðarveiðar Íslendinga séu sjálfbærar engu síður en norðhvalsveiðar Bandaríkjamanna. Ákvörðun verði tekin um kvóta Bandaríkjanna á norðhval til fimm ára á ársfundi ráðsins í Panama á næsta ári og þurfi Bandaríkin stuðning 3/4 hluta aðildarríkjanna til að kvótinn verði samþykktur.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Bjarki Kristjánsson Veik röksemdarfærsla -
Vilborg Eggertsdóttir LISTEN TO YOUR HEART!! -
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. júlí 2011, Innlent Gagnrýni svarað á ársfundi
- Laugardagur, 17. september 2011, Innlent Hafa hrakið rök Bandaríkjamanna
- Föstudagur, 16. september 2011, Innlent Ekki grundvöllur fyrir aðgerðum
- Miðvikudagur, 20. júlí 2011, Innlent Útnefningin vekur undrun
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Efast um að hvalveiðarnar séu sjálfbærar
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































