Fjögur bifhjól af fimm í ólagi
Fjórir af fimm ökumönnum bifhjóla sem tekin voru til athugunar í skyndiskoðun síðdegis í dag voru ekki með hlutina í lagi. Varðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar telur að bifhjólamenn þurfi almennt að laga skráningarmerki og pústkerfi hjóla sinna.
Umferðarstofa, lögregla höfuðborgarsvæðisins og skoðunarstöðvar voru með skyndiskoðun á bifhjólum á milli klukkan 17 og 19 í dag. Lögreglan boðaði fimm ökumenn sem voru á ferð um Hringbraut og nágrenni í skoðun á bifreiðastæði við BSÍ.
Tilgangurinn með átakinu er að auka umferðaröryggi og kanna búnað bifhjóla í umferðinni, samkvæmt upplýsingum Umferðarstofu.
Lögreglan stöðvaði fimm bifhjól á þessum tíma. Eitt reyndist í fullkomnu lagi og hélt för sinni áfram en fjögur voru tekin til nánari skoðunar.
Ólafur Knútsson, varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að tvö hjólanna hafi verið með ófullnægjandi skráningarmerki, of mikill hávaði hafi verið frá þremur og eitt hjólanna hafi hvorki verið með spegla né stefnuljós.
Hann segir að þessi skyndiskoðun staðfesti það álit að búnaði bifhjóla sé verulega áfátt, sérstaklega þurfi menn að huga að skráningarmerkjum og pústkerfi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. september 2011, Innlent Bifhjól í misjöfnu ástandi
- Miðvikudagur, 20. apríl 2011, Innlent Minni umferð en búist var við
- Laugardagur, 27. nóvember 2010, Innlent Ökumenn allsgáðir en margir án ökuskírteinis
- Þriðjudagur, 7. febrúar 2012, Innlent Fíkniefnasali tekinn í Herjólfi
- Laugardagur, 24. mars 2012, Innlent Útlitið dökkt í akstursmálum
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































