Nýja-Ísland ekki á leiðinni
„Það bólar ekki á Nýja-Íslandi. Það glittir kannski rétt í nefið á því,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, og bætir því við að ekki þurfi að koma á óvart að virðingin fyrir Alþingi fari þverrandi. Málþóf, skætingur og hagsmunagæsla einkenni störf þingsins tæpum þremur árum eftir hrun.
Í síðustu viku lýsti Valgerður Bjarnadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, því yfir í ræðustól Alþingis að ekki ætti að koma á óvart að þingmenn væru „núll og nix“ í augum almennings, vegna framgöngu þeirra í þinginu.
Orðrétt sagði Valgerður: „Það er ekki hægt að tala mannamál í þessum sal vegna þess að mönnum liggur svo mikið á að snúa út úr hverju einasta orði sem hér er sagt. Og það er þess vegna ekki furða þó þjóðinni finnist við bara núll og nix og næstum til óþarfa.“
Síðar sama dag var Þráinn Bertelsson þingmaður rekinn úr ræðustól vegna ummæla um starfandi menntamálaráðherra.
Svo bar það við í morgun að Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, uppnefndi Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, „forsetaræfilinn“ í þingræðu.
En hvorki Björn Valur né Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, tóku símann þegar mbl.is sló á þráðinn til þeirra fyrir stundu.
Aðspurður um stöðu Alþingis og almenningsálitið í ljósi þessara uppákoma svaraði Þór því til að ástandið hefði „ef eitthvað er versnað síðan efnahagshrunið varð“.
Þingstörf einkennist af hagsmunagæslu og tilgangslausu málþófi.
„Nýja-Ísland lætur bíða eftir sér, að minnsta kosti á Alþingi Íslendinga,“ sagði Þór Saari í hádeginu.
Bloggað um fréttina
-
Egill Jón Kristjánsson Hvar liggja völdin, hjá alþingi? -
Jón Ingi Cæsarsson Hálfvitagangurinn á Alþingi. -
Guðjón Sigþór Jensson Léleg og ómálefnaleg stjórnarandstaða
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent „Engin framtíðarsýn um framtíð verðtryggingar“
- Sunnudagur, 13. maí 2012, Innlent Stjórnarskrármál á hreyfingu
- Föstudagur, 30. mars 2012, Innlent Heimaseta sama og samþykki
- Mánudagur, 14. febrúar 2011, Innlent Tillaga um þjóðaratkvæði felld
- Þriðjudagur, 22. maí 2012, Innlent Pétri meinað að taka til máls
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































