Björn kemur föður sínum til varnar

Björn Bjarnason stækka

Björn Bjarnason Kristinn Ingvarsson

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir þá söguskoðun að faðir hans, Bjarni Benediktsson „hafi óttast svo Atómstöðina sem kom út 1948 að hann hafi á gengið á fund sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík og beðið hann um aðstoð „við að eyðileggja mannorð“ Halldórs í Bandaríkjunum“.

Þetta kemur fram í pistli á vef Björns en með skrifunum er ráðherrann fyrrverandi að bregðast við umfjöllun Kastljóss í fyrradag um nýja heimildarmynd um Halldór Laxness.

Laxness og bandaríski bókamarkaðurinn

Orðrétt skrifar Björn: 

„Í Kastljósi miðvikudaginn 14. september var sagt frá heimildarmynd sem unnið er að um Halldór Laxness til kynningar á honum fyrir útlendinga. Þar er sú skýring fundin á því að bækur Halldórs hættu að seljast í Bandaríkjunum undir lok fimmta áratugarins að íslensk stjórnvöld, það er Bjarni Benediktsson, faðir minn, hafi óttast svo Atómstöðina sem kom út 1948 að hann hafi á gengið á fund sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík og beðið hann um aðstoð „við að eyðileggja mannorð“ Halldórs í Bandaríkjunum. Það hafi tekist á þann veg að bækur hann seldust ekki meira þar.

Þessi söguskýring er með ólíkindum þótt hún sé ekki ný. Að íslensk stjórnvöld og bandarísk ráði því hvort Bandaríkjamenn hætti að lesa einhvern höfund er fráleitt.  Hitt er einnig mikil einföldun á því sem gerðist á þessum árum og snerti afskipti íslenskra stjórnvalda af umsvifum Halldórs í Bandaríkjunum.“

Sjálfstætt fólk seldist í mörg hundruð þúsund eintökum

Björn vísar til ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Laxness.

„Afskiptin lutu að fjármálum og skattamálum eins og ítarlega er rakið í bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, Laxness. Þar segir meðal annars frá því á blaðsíðu 34 að í samtali föður míns, sem þá var utanríkisráðherra, og Williams Trimbles, sendifulltrúa Bandaríkjanna, sumarið 1947 hafi Laxness borið á góma en bók hans Sjálfstætt fólk kom út í Bandaríkjunum árið 1946 hjá Book-of-the-Month Club og seldist í mörg hundruð þúsund eintökum. 

Halldór Laxness gegndi á þessum árum lykilhlutverki sem baráttumaður fyrir kommúnista og gegn Bandaríkjunum.  Vildi utanríkisráðherra vita hve há höfundarlaun Laxness hefði fengið í Bandaríkjunum, það fé rynni hugsanlega til að kosta margvíslega baráttu kommúnista á Íslandi. Bandaríska utanríkisráðuneytið sendi fyrirspurn um þetta í fjármálaráðuneytið haustið 1947. Hinn 21. febrúar 1948 sagði Trimble síðan í skeyti til yfirboðara sinna: „Athugið að orðstír Laxness myndi skaðast verulega, ef við komum því til skila, að hann sé að reyna að komast undan tekjuskatti. Þar af leiðandi er mælt með frekari rannsókn á þeim höfundarlaunum, sem hann hefur væntanlega fengið fyrir Sjálfstætt fólk,“ rifjar Björn Bjarnason upp í pistli sínum.

Málið var rannsakað

Björn heldur áfram og ræðir efnistök höfunda heimildarmyndarinnar um Laxness.

„Fram kom að Halldór hafði fengið 24.000 dollara og stæðu 21.000 dollarar á bankabók Halldórs. Frá þessu skýrði sendifulltrúinn utanríkisráðherra í trúnaði. Síðar fengust þessar upplýsingar eftir opinberum leiðum að ósk sýslumannsins í Gullbringu- og Kjósarsýslu sem hófst handa við að innheimta skatt af Halldóri, tæplega 10.000 dollara. Var að lokum samið um málið. Einnig var rannsakað hvort Halldór hefði brotið gjaldeyrislög þar sem hann hefði ekki skilað gjaldeyri lögum samkvæmt. Var hann sakfelldur fyrir það eftir að hafa neitað réttarsátt.

Þeim sem vilja gera heimildarmynd um Laxness fyrir útlendinga finnst ef til vill ekki heppilegt að segja þessa sögu eins og hún er. Þeir eru hins vegar ekki að segja söguna alla á þann hátt sem þeir kusu að lýsa henni í Kastljósinu. Hafi eitthvað annað orðið til að draga úr áhuga Bandaríkjamanna á að kaupa og lesa bækur Laxness en almennt gerist með bækur eða höfunda sem búa við misjafnar vinsældir er skýringin í myndinni of langsótt til að vera trúverðug.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bayliner Trophy 5.6m uppl. 861-8050
Bayliner Trophy stöðugur og flottur bátur. báturinn selst með kerru og án mótors...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005
Til sölu Polaris Sportsman 800 , árgerð 2005 , ekið 4.700 km. , er á nýjum Bigho...
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI
Til leigu mjög góð 2-herb,55 fm íbúð á 3hæð AKRANESI Leiga 75þús með hita og ra...
 
Samkoma
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grens...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...