Rúmlega 400 jarðskjálftar í Kötlu

Katla hefur skolfið nokkuð að undanförnu. stækka

Katla hefur skolfið nokkuð að undanförnu.

Undir Mýrdalsjökli voru staðsettir rúmlega 400 jarðskjálftar í ágústmánuði. Þar af voru 156 skjálftar undir Kötluöskjunni, 119 skjálftar undir vesturhluta jökulsins og 126 smáskjálftar við Hafursárjökul suður af öskjunni.

Stærsti skjálftinn, rúmlega 3 að stærð var þann 19. ágúst kl. 02:25 með upptök í norðaustanverðri öskjunni, við Austmannsbungu. Upptök skjálftanna innan öskjunnar voru aðallega í þremur þyrpingum, norðaustan til, sunnanvert við sigketil númer 16 og vestanvert við sigkatla númer 5 og 6.

Sunnudaginn 28. ágúst milli kl. 11-13 var skjálftahrina á um 5 km dýpi við vestanverðan jökulinn. Alls mældust 27 skjálftar í hrinunni, sá stærsti 2,1 stig. Jarðskjálftarnir við Hafursárjökul sunnan öskjunnar voru allir minni en 1 að stærð og allir með upptök við yfirborð. Undir Eyjafjallajökli mældust 3 smáskjálftar og voru þeir allir minni en 0,5 að stærð, segir í yfirliti Veðurstofunnar um jarðskjáfta á Íslandi í ágústmánuði.

Starfsmenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans fóru fyrr í á Mýrdalsjökul, með aðstoð Landhelgisgæslunnar, til að undirbúa GPS- og skjálftamæla fyrir veturinn.

Tæplega 30 jarðskjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu og voru allir undir 2 að stærð. Í og við sunnanverðan Langjökul voru 11 jarðskjálftar. Sá stærsti mældist 3,3 stig þann 20. ágúst kl. 16:02 með upptök við hábungu jökulsins. Sunnan við Blöndulón mældust 7 jarðskjálftar og sá stærsti var 2,3 að stærð.

Fremur rólegt var undir Vatnajökli í ágúst. Einhver skjálftavirkni var við Kistufell, Bárðarbungu og Kverkfjöll, en skjálftarnir voru fáir og smáir (stærsti 2,1 stig). Dagana 21. - 24. ágúst mældust átta skjálftar suðaustur af Hvannadalshnjúk, stærsti 2,2 stig. Frá upphafi stafrænna skjálftamælinga (1991) hafa mælst á sjötta tug skjálfta í Öræfajökli og í næsta nágrenni. Ef aðeins er skoðuð skjálftavirkni innan öskjunnar eru skjálftarnir þar tæplega þrjátíu talsins og hafa þeir ýmist orðið stakir, tveir og tveir eða hrina nokkurra skjálfta eins og nú. Aðrar slíkar hrinur urðu í desember 2005 og september 2008.

Það var einnig rólegt á svæðinu norðan Vatnajökuls. Nokkur skjálftavirkni var við Öskju og Herðubreið, en annars voru skjálftar fáir og dreifðir. Stærsti skjálftinn var 2,7 stig með upptök austan við Herðubreið.

Um 300 skjálftar fyrir norðan

Um 300 skjálftar mældust norðan við land á Tjörnesbrotabeltinu. Um 90 áttu upptök norður af Tröllaskaga um 40 km vestur af Grímsey, en þar varð hrina dagana 9. - 13. ágúst. Stærsti skjálftinn var 3,0 stig, aðrir 2,7 og minni. Einnig var nokkur hreyfing nær landi úti fyrir mynni Eyjafjarðar. Þann 11. ágúst mældist rúmur tugur skjálfta á innan við klukkutíma, um 40 km norðnorðvestur af Grímsey. Sá stærsti var 2,9 að stærð. Þá tíndust inn jafnt og þétt allan mánuðinn um 40 skjálftar undir Öxarfirði miðjum, sá stærsti var 2,2 stig. Nokkrir dreifðir smáskjálftar voru beggja vegna Eyjafjarðar, nokkrir við Þeistareyki, sá stærsti 1,5 stig og við Kröflu mældust einnig nokkrir smáskjálftar.

Á fjórða tug skjálfta voru staðsettir á Reykjaneshrygg, flestir þeirra 3.-5. ágúst og tveir stærstu skjálftarnir voru 3,2 og 3,7 að stærð. Á Reykjanesskaganum bar mest á skjálftahrinum við Kleifarvatn og Grindavík. Á fimmta tug skjálfta, urðu austan og norðaustan Grindavíkur, flestir dagana 15.-18. ágúst. Nokkrir stærstu skjálftanna fundust vel í Grindavík þar sem innanstokksmunir hristust. Stærstu skjálftarnir urðu þriðjudagskvöldið 16.ágúst (kl.22:14, 3,4 stig), aðfararnótt miðvikudags 17. ágúst (kl.01:16, 2,9 stig, kl. 01:34, 3,2 stig) og á miðvikudagskvöld (kl.23:19, 2,6 stig). Ein tilkynning barst jafnframt um að skjálftinn á miðvikudagkvöld hafi fundist í túnunum í Garðabæ.

216 skjálftar voru staðsettir í nágrenni Krýsuvíkur og Kleifarvatns, um helmingur þeirra varð 12. ágúst rétt norðan Stefánshöfða. Stærsti skjálftinn var 3,1 að stærð og varð hans vart víða á höfuðborgarsvæðinu. Önnur þyrping skjálfta var staðsett undir austurströnd vatnsins í kringum 3. ágúst, stærsti skjálftinn þar mældist 2,9 stig. Einn skjálfti var staðsettur á Selvogsbanka (um 27 km sunnan Selvogs) og einn rétt vestan Heimaeyjar (á 15,6 km dýpi).

Á Suðurlandi, frá Hjallahverfi í Ölfusi og austur að Heklu, voru staðsettir á milli 180 og 190 skjálftar. Flestir þeirra voru staðsettir vestan Selfoss, þar af voru ríflega 30 eftirskjálftar á suðurhluta Krosssprungunnar frá maí 2008, skjálftar í Hjallahverfi og á Ingólfsfjallsprungu (einnig frá 2008). Sautján skjálftar voru einnig staðsettir á Hestvatnssprungunni frá 21. júní 2000, þrír nærri gömlu Selsundssprungunni (frá 1912). Stakur skjálfti var staðsettur (á 10 km dýpi) í Vatnafjöllum, sunnan Heklu og þrír skjálftar voru einnig staðsettir 2,5-6,5 km norður af Þykkvabæ, allir litlir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Tuscon, 750.000 afsláttur
Til sölu gott eintak 06/2008 silfurgrár bensínbíll, vél 1975cc, fjórhjóladrifinn...
Gisting í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum ...
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 verð 499.000
Toyota Corolla Touring 4x4 árg 2000 ekinn 166.000 km Tilboðsverð 499.000 staðgr...
Sumarhúsasmíði Sveins.
Íslensk hágæða framleiðsla. Löggiltur húsasmíðameistari. Smíðum eftir þínum teik...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...