Heilsuþema á Óðinstorgi

Heilsumarkaður er nú haldinn á Óðinstorgi í tilefni af matarhátíðinni …
Heilsumarkaður er nú haldinn á Óðinstorgi í tilefni af matarhátíðinni Full borg matar. mbl.is/Kristinn

Heilsumarkaður var haldinn á Óðinstorgi í Þingholtunum í dag í tengslum við matar- og uppskeruhátíðina Full borg matar.

Ýmsar vörur tengdar heilsu voru til sölu og sýnis og mátti sjá fólk á öllum aldri spóka sig um, enda veður milt í höfuðborginni. Hátíðinni Full borg matar lýkur á morgun en allar upplýsingar um viðburði er að finna hér.

Börnin voru mætt á Óðinstorg þar sem haldinn er heilsumarkaður.
Börnin voru mætt á Óðinstorg þar sem haldinn er heilsumarkaður. mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert