Fréttaskýring: Ræðusnilld á septemberþingi

Brúnin léttist á þingmönnum þegar leið á daginn. Össur Skarphéðinsson og Árni Þór Sigurðsson í ... stækka

Brúnin léttist á þingmönnum þegar leið á daginn. Össur Skarphéðinsson og Árni Þór Sigurðsson í ræðustól. mbl.is/Eggert

Tilgangurinn með þingi í september var að gefa þinginu tækifæri til að vinna betur vandasöm og umdeild mál yfir sumarið frekar en að keyra þau í gegn í ósamkomulagi á vorþingi. Þetta segir Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis, sem árið 2007 beitti sér fyrir breytingum á þingskapalögum.

Frumvarpið sem Sturla flutti ásamt forsætisnefnd Alþingis fól í sér að þingið kæmi saman í september til að fjalla um mál sem ekki hlutu afgreiðslu á vorþingi. 1. október kemur síðan nýtt þing saman og þá er fjárlagafrumvarpið lagt fram. Frumvörp sem ekki hljóta afgreiðslu á septemberþingi þarf að flytja að nýju á haustþingi.

„Hugmyndin á bak við septemberþingið var annars vegar að fá tækifæri til þess að nota sumarið til að vinna betur vandasöm og umdeild mál og ná sátt um þau fremur en að keyra þau til enda í ósamkomulagi að vori. Þingnefndir starfa yfir sumarið og þar gefst því tækifæri til að fara betur yfir mál. Hins vegar var hugmyndin sú að áður en ríkisstjórnin legði fram fjárlagafrumvarp hefði ríkisstjórninni gefist tækifæri til að gera þinginu grein fyrir stöðunni almennt og gefa stjórnarandstöðunni tækifæri til að leggja fram fyrirspurnir og kalla eftir aðgerðum áður en öllu væri í gadda slegið í umræðu um fjárlagafrumvarpið,“ sagði Sturla.

Umræður í 58 klukkustundir

Sturla sagði ekki óeðlilegt að miklar umræður væru um stjórnarráðsfrumvarpið enda fæli það í sér eflingu framkvæmdavaldsins á kostnað löggjafarvaldsins. Hann sagðist ekki telja það neinn „héraðsbrest“ þó frumvarpinu væri frestað. Það myndi vonandi batna við frekari skoðun.

Í greinargerð með frumvarpinu frá 2007 segir að stefnt sé að því að fundir Alþingis standi aðeins fram að kvöldmat. Lögin gera ráð fyrir að forseti þurfi að óska sérstakrar heimildar þingsins ef halda á kvöldfund. Haldnir hafa verið tveir kvöldfundir um stjórnarráðsmálið í þessari viku sem stóðu fram eftir nóttu.

Þegar þingfundur hófst í gær höfðu umræður um stjórnarráðsfrumvarpið staðið í 58 klukkustundir. Haldin hafði verið 141 þingræða og gerðar höfðu verið 1143 athugasemdir eða andsvör við ræður þingmanna.

Samkvæmt gildandi lögum um stjórnarráðið eru ráðuneytin talin upp í lögunum. Í frumvarpi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um stjórnarráðið er gert ráð fyrir að þetta verði aflagt. Einungis forsætisráðherra er nefndur í lögunum og hann gerir síðan tillögu um önnur ráðuneyti, en þau mega flest vera 10.

Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er andvígur frumvarpinu og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra gerir fyrirvara við það.

Ræddu ræktun sauðnauta á Íslandi

Sauðnaut og fleiri dýr komu til umræðu á þingfundi í fyrrakvöld þegar rætt var um stjórnarráðsþingið. Það var Árni Johnsen alþingismaður sem hóf umræðu um sauðnaut í sinni annarri ræðu sem hann flutti um stjórnarráðsfumvarpið.

Árni kom víða við í ræðu sinni. Hann fjallaði m.a. um skúma, háhyrninga, sauðnaut, nashyrninga og geitunga. Ásmundur Einar Daðason alþingismaður brást við ræðu Árna sem hann sagði að hefði verið „yfirgripsmikil“ og að hún hefði „á margan hátt sett nýjan vinkil á þetta mál svo ekki sé fastar að orði kveðið“. Hann spurði síðan Árna hvert af þeim dýrum sem hann hefði nefnt í ræðu sinni ætti best við ríkisstjórnina.

Árni svaraði og sagði að sauðnaut lýsti ríkisstjórninni best. „Það [sauðnaut] er bundið stað og stund og hefur mestan áhuga á holtum og melum; ekki ökrum og túnum, ekki árangri heldur að þrauka af eins og frændur þeirra mammútarnir forðum.“

Ásmundur kom aftur upp í andsvari og spurði Árna hvort hann teldi sóknarfæri fyrir Íslendinga að flytja inn sauðnaut. „Það er engin spurning að menn eiga aftur að reyna innflutning og ræktun á sauðnautum,“ sagði Árni og bætti við að tilraun til að flytja inn sauðnaut á þriðja áratugnum hefði mistekist vegna þess að sauðnautin hefðu verið látin éta vitlaust fóður. „Þau náðu engri meltingu og drápust. Þetta er nákvæmlega sama og hæstvirt ríkisstjórn er að gera. Hún er að troða vitlausu fóðri í íslenska þjóð.“

Náðu saman um orðalag

Egill Ólafsson

Kristján Jónsson

Eftir að samkomulag náðist um orðalagsbreytingar á stjórnarráðsfrumvarpinu í gær varð ljóst að þráteflið sem verið hefur í þinginu síðustu daga myndi taka enda. Var frumvarpið samþykkt til þriðju umræðu með 32 atkvæðum, 16 voru á móti, Atli Gíslason sat hjá en aðrir voru fjarverandi.

Alls lágu 48 mál fyrir þinginu og að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingflokksformanns sjálfstæðismanna, myndi sennilega takast að afgreiða flest þeirra fyrir þinglok sem áætlað er að verði í dag. Stærstu og umdeildustu málin eru frumvarp um stjórnarráðið, frumvarp um framlengingu gjaldeyrishafta og sveitarstjórnarlög.

Samkvæmt breytingum á stjórnarráðsfrumvarpinu sem kveðið er á um í samkomulagi ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu þarf forsætisráðherra að fá samþykki Alþingis fyrir breytingum á fjölda og heitum ráðuneyta.

Fær ítarlegri umfjöllun

„Það sem breytist fyrst og fremst efnislega er það að í stað þess að fjöldi ráðuneyta og heiti séu í ákvörðunarvaldi forsætisráðherra verður nauðsynlegt að fá samþykki Alþingis áður en hann leggur fram tillögu um þessi atriði fyrir forseta. Þá þarf tillagan að hafa fengið samþykki Alþingis eftir reglum um þingsályktunartillögur,“ segir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Þannig sé tryggt það áhersluefni flokksins í umræðunni að breytingar á ráðuneytum þurfi alltaf að fá umræður og meðferð þingsins.

„Að þessu gefnu er samkomulag um að meðferð málsins haldi áfram og því væntanlega lokið ef það nýtur meirihluta í þinginu. Svo mun afstaða einstakra manna og flokka birtast í atkvæðagreiðslum,“ segir hann.

Búist var við að lokaatkvæðagreiðsla um frumvarpið yrði eftir þriðju og síðustu umræðu í dag.

Stjórnarráðsfrumvarpið og frumvarp um framlengingu gjaldeyrishafta hafa verið mjög umdeild. Frumvarp innanríkisráðherra um sveitarstjórnarmál er einnig mjög stórt og viðamikið mál.

Tala mikið

» Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, hefur talað samtals í 245 mínútur um stjórnarráðsfrumvarpið.
» Flokksbróðir hans, Ásmundur Einar Daðason, hefur talað í um 243 mínútur um málið.
Í þriðja sæti er framsóknarkonan Vigdís Hauksdóttir sem talað hefur í 226 mínútur.
» Á eftir þeim koma sjálfstæðismennirnir Birgir Ármannsson með 224 mínútur og Einar K. Guðfinnsson með 182 mínútur.
» Ásmundur hefur 111 sinnum farið upp í andsvör, Gunnar Bragi 110 sinnum og Vigdís 76 sinnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »
Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.

Fisvél brotlenti við Klaustur

17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sportbátur til sölu
Balyner 175, 2006 árgerð með 135 hestafla innanborðs bensín vél. Vagn, yfirbreið...
Til sölu fellihýsi
Til sölu fellihýsi med fortjaldi gasmidstöd og 220voltarafm vel med farid uppl 6...
Slökkvitæki á ótrúlegu verði
Vegna magninnkaupa bjóðum við nokkrar gerðir slökkvitækja á ótrúlegu verði í tak...
Vatnsdælur 2, 3, 4 tommu bensindrifnar
Vatnsdælur á fínu verði 2 og 3 og 4 tommu, öflugar dælur .Einnig 4 tommu diesel...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...