Aftöku Davis mótmælt á Íslandi
Íslandsdeild Amnesty International hvetur fólk til að mótmæla yfirvofandi aftöku Troys Davis í dag kl. 16.00 fyrir utan bandaríska sendiráðið, Laufásvegi 21 í Reykjavík.
Troy Davis hefur verið 20 ár á dauðadeild í Bandaríkjunum fyrir morð sem hann hefur staðfastlega neitað að hafa framið. Nú hafa yfirvöld í Georgíu-ríki ákveðið að hann skuli tekinn af lífi í dag 21. september, segir í tilkynningu frá Amnesty International.
Troy Davis var dæmdur til dauða árið 1991 fyrir morð á lögreglumanni í Savannah í Georgíu-ríki. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og flest vitna ákæruvaldsins eða 7 af 9, sem báru vitni gegn honum við réttarhöldin, hafa síðar dregið framburð sinn til baka eða gerst sek um mótsagnakenndar yfirlýsingar.
„Grunur leikur á að sum þeirra hafi sætt þrýstingi frá lögreglunni um að gefa framburðinn. Engar áþreifanlegar sannanir hafa fundist gegn Troy Davis og morðvopnið hefur aldrei komið í leitirnar. Þá hefur ekkert erfðaefni fundist sem getur tengt hann við málið. Málið gegn honum byggist einvörðungu á frásögn vitna,“ segir í tilkynningu frá Amnesty International sem berst fyrir afnámi dauðarefsinga um allan heim.
Innlent »
- Selur fylgist með skútunum
- Ráðgjöf veitt á Atvinnutorgi
- Þremur sagt upp hjá Becromal
- Vaxandi hríðarveður á Vestfjörðum og Norðurlandi
- Reglur ræddar í Hafnarfirði
- Rán framið á Akureyri
- WOW air notar Airbus-vélar
- Skoði betur kaflann um forsetann
- Draga hækkun til baka
- Gagnrýnir skamman fyrirvara
- Klára málið í næstu viku
- Segir rangt farið með málsatvik
- Börn og unglingar í óhamingjugildru
- Afgreiðsla ekki í samræmi við lög
- Baðst afsökunar fyrir 12 árum
-
Hundarnir finna dópið strax
- Ummerki um olíu frá Júratímabilinu
- Gerir alvarlegar athugasemdir
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Forstjóra FME sagt upp störfum
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. september 2011, Innlent Aftöku mótmælt við bandaríska sendiráðið
- Sunnudagur, 19. september 2010, Innlent Íslensk stjórnvöld hvött til að mótmæla
- Mánudagur, 20. september 2010, Innlent Boða mótmæli við Alþingi
- Miðvikudagur, 8. febrúar 2012, Innlent Evróvisjón í skugga kúgunar?
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Borgarafundir á fjórum stöðum
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
Háskólakennsla
Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasvið...




































