Aftöku mótmælt við bandaríska sendiráðið
Rúmlega 30 manns taka nú þátt í friðsamlegum mótmælum við bandaríska sendiráðið vegna fyrirhugaðrar aftöku Troys Davis en hundruð þúsunda manna hafa beðið um að lífi hans verði þyrmt. Aftakan á að fara fram í Georgíu í Bandaríkjunum á miðnætti í kvöld að íslenskum tíma.
„Við erum að senda skilaboð og sýna samstöðu með þeim sem eru að mótmæla í Bandaríkjunum,“ segir Jessie Vanderveen lögfræðingur sem er einn mótmælendanna hjá bandaríska sendiráðinu. Troy Davis var árið 1991 fundinn sekur um að hafa myrt lögreglumann tveimur árum áður og segja stuðningsmenn Davis mikinn vafa leika á sekt hans. Sjálfur hefur hann alla tíð lýst yfir sakleysi sínu.
„Sakfelling Davis byggðist eingöngu á framburði sjónarvotta og eru ekki til nein lífsýni sem tengja hann við morðið auk þess sem morðvopnið hefur aldrei fundist,“ segir Vanderveen. „Hann var sakfelldur og dæmdur til dauða vegna vitnisburðar níu sjónarvotta en sjö þeirra hafa dregið vitnisburð sinn til baka eða breytt honum. Eftir að hann var dæmdur hafa fjölmargar rannsóknir sýnt fram á að vitnisburður sjónarvotta geti verið mjög óáreiðanlegur. Sum vitnanna hafa sagt frá því að lögreglan hafi þvingað þau til að undirrita yfirlýsingar þar sem sagði að Troy Davis væri morðinginn og eitt vitnanna kunni ekki að lesa og lét lögreglan hann fá yfirlýsingu sem hann átti að undirrita,“ bætir Vanderveen við.
Meðal þeirra sem hafa beðið um að lífi Davis verði þyrmt eru Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og fyrrverandi ríkisstjóri í Georgíu, og Benedikt XVI. páfi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. september 2011, Innlent Aftöku Davis mótmælt á Íslandi
- Mánudagur, 8. nóvember 2010, Innlent Eftirlit við Laufásveg
- Miðvikudagur, 16. nóvember 2011, Innlent Tengdust ekki Occupy Reykjavík
- Mánudagur, 8. nóvember 2010, Innlent Biður ríkislögreglustjóra um skýrslu
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Mótmælandi rekinn frá Securitas
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































