Fjárhagsvandi heimilanna eykst
Sífellt fleiri eiga erfitt með að láta enda ná saman og fjárhagsvandi íslenskra heimila er að aukast. Þetta segir Guðbjörg Andrea Jóndóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands.
Á fundi á vegum stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í morgun sagði Guðbjörg að um væri að ræða þrjá hópa í þessu samhengi; þá sem gætu lagt til hliðar, þá sem rétt næðu endum saman og þá sem ekki næðu endum saman.
Samkvæmt nýjum rannsóknum eru þessir þrír hópar jafnstórir.
„Það dró úr kynbundnum launamun í kjölfar efnahagshrunsins,“ sagði Guðbjörg. „Ég vil leyfa mér að setja fram þá tilgátu að mismunandi hagræðingaraðgerðir gagnvart körlum og konum hafi haft þetta í för með sér.“ Hún sagði að hætta væri á því að kynbundinn launamunur ykist að nýju, þegar þessar hagræðingaraðgerðir gengju til baka.
Samkvæmt rannsóknum hefur lítið dregið úr hamingju Íslendinga þrátt fyrir ýmsar þrengingar, en árið 2009 voru um 94% landsmanna mjög eða frekar hamingjusöm. „Ísland trónir ennþá á toppi þeirra ríkja sem eru hvað hamingjusömust,“ sagði Guðbjörg, en tekjur hafa áhrif í þessu sambandi.
Þeir sem eru með hæstar tekjur eru hamingjusamari en aðrir tekjuhópar. „Það er greinilegt að það er sterkt samband á milli tekna og hamingju, En hlutfall þeirra em segjast vera mjög hamingjusamir eykst í öllum tekjuhópum,“ segir Guðbjörg.
Hún ræddi um rannsóknir á lífshamingju barna og sagði að ýmsar rannsóknir hefðu verið gerðar á því sviði, en þær væru mjög misvísandi. En fáar vísbendingar væru um að dregið hefði almennt úr lífsánægju barna. Þeim börnum hefði fjölgað sem teldu fjárhagsstöðu fjölskyldunnar slæma. Einnig þeim börnum sem mætu líðan sína afar slæma.
„Ýmislegt bendir til þess að börnum í fátækustu fjölskyldunum líði verr núna en fyrir hrunið,“ sagði Guðbjörg.
Hún sagði að lífsgildi Íslendinga hefðu breyst, fleiri legðu mikla áherslu á fjölskyldu, vini og kunningja, en vinnan skipti fólk einnig meira máli en áður.
Niðurstöður rannsókna Guðbjargar voru að Íslendingar bæru minna traust til opinberra stofnana og ýmissa grunnstoða samfélagsins, tortryggni hefði vaxið og vitund um spillingu aukist. Að sama skapi hefði vinnutími styst og meiri ánægja væri almennt með fjölskyldulíf.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Föstudagur, 16. mars 2012, Innlent „Börðumst saman eins og við gátum“
- Fimmtudagur, 12. apríl 2012, Innlent Fékk reglugerð sem er ekki í gildi
- Fimmtudagur, 12. apríl 2012, Innlent Segjast fylgja lögunum
- Þriðjudagur, 24. apríl 2012, Innlent Erfðabreytt og lífræn ræktun geta þrifist saman
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































