Sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart þremur stúlkubörnum. Var maðurinn dæmdur til að greiða einni stúlkunni þrjár milljónir króna í bætur, annarri 800 þúsund krónur og þeirri þriðju 400 þúsund krónur.
Maðurinn var fundinn sekur um að hafa brotið ítrekað gegn einni stúlkunni þegar hún var 7-8 ára gömul en stúlkan fæddist árið 2001. Brotin voru framin á heimili mannsins þar sem stúlkan dvaldi oft vegna tengsla mannsins við móður hennar.
Maðurinn ljósmyndaði m.a. telpuna á kynferðislegan og klámfenginn hátt og af myndunum má ætla að sum brotin hafi verið framin þegar stúlkan var í djúpum svefni. 8.054 ljósmyndir og 623 hreyfimyndir, sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt og í kynferðisathöfnum með dýrum, fundust í fórum mannsins.
Hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa árið 2001 brotið gegn 11 ára gamalli dóttur þáverandi sambýliskonu sinnar. Loks var hann fundinn sekur um að hafa á síðasta ári káfað á níu ára gamalli stúlku sem var gestkomandi á heimili hans.
Dómurinn var fjölskipaður. Nafn mannsins er ekki birt í dómnum af tillitssemi við stúlkurnar sem hann braut gegn.
Kært í fyrra
Móðir einnar stúlkunnar kærði manninn til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í maí á síðasta ári fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var handtekinn og yfirheyrður og hald lagt á tölvubúnað hans en honum var síðan sleppt. Maðurinn var síðan úrskurðaður í gæsluvarðhald í júní á þessu ári og hefur setið í varðhaldi síðan. Hörð gagnrýni kom fram á lögregluna á Selfossi fyrir að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir manninum strax í kjölfar kærunnar.
Í dómi héraðsdóms segir, að maðurinn sé fyllilega sakhæfur og eigi sér engar málsbætur.
Þegar fjallað er um bótakröfu yngstu stúlkunnar segir, að maðurinn hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi í tvö ár með ófyrirséðum afleiðingum. Hann hafi gengið svo langt að hann hafi myndað barnið meðan hann braut á því.
Þrátt fyrir að lögreglu hafi ekki tekist að sanna dreifingu á efninu sé ekki hægt að útiloka að því hafi verið dreift. Ef slíkt efni sé komið í dreifingu sé ómögulegt að ná því til baka af veraldarvefnum með tilheyrandi skaða og óöryggi fyrir barnið um alla framtíð. Gögn frá kennurum brotaþola og Barnahúsi sýni hversu alvarlegar afleiðingar brot mannsins hafi haft á hana. Erfitt sé að meta skaðann sem jafnalvarleg brot geti valdið svo ungu barni til framtíðar og geti liðið langur tími þar til afleiðingarnar komi í ljós. Sé ljóst að hún neyðist til að læra að lifa með þessa slæmu reynslu sína og horfast í augu við hana sem sé þungur baggi að bera allt lífið. Hún muni fyrirsjáanlega þurfa á aðstoð sérfræðinga að halda við að vinna úr afleiðingunum í fjölmörg ár ef ekki ævilangt.





































