Handhafar höfundarréttar gætu stöðvað bygginguna
Hugsanlegt er að handhafar höfundarréttar Harðar Bjarnasonar, arkitekts Skálholtskirkju, gætu komið í veg fyrir að Þorláksbúð yrði reist við hlið kirkjunnar ef þeir sæktust eftir því.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir Tryggvi Tryggvason, arkitekt og lögfræðingur, að hægt væri að túlka höfundarlög þannig að dómstólar gætu stöðvað framkvæmdirnar jafnvel þótt ekki standi til að breyta kirkjunni sjálfri.
Deilt hefur verið um byggingu Þorláksbúðar sem Þorláksbúðarfélagið, undir forystu Árna Johnsen þingmanns, hefur haft veg og vanda af að reisa. Hefur það verið gagnrýnt hvað nýja byggingin stendur nærri Skálholtskirkju sem byggð var árið 1963 samkvæmt teikningum Harðar Bjarnasonar, þáverandi húsameistara ríkisins.
Hafa börn Harðar, sem eru handhafar höfundarréttarins, lýst því yfir að aldrei hafi verið leitað samþykkis þeirra fyrir framkvæmdunum og að nýbyggingin sé alvarlegt stílbrot og skaði ásýnd kirkjunnar verulega.
Byggingar arkitekta falla undir lög um höfundarrétt rétt eins og önnur hugverk. Sá réttur gildir í 70 ár frá andláti höfundar.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 9. nóvember 2011, Innlent Grind Þorláksbúðar rís
- Þriðjudagur, 13. september 2011, Innlent Yfirlýsing vegna framkvæmda við Skálholt
- Laugardagur, 17. september 2011, Innlent Kirkjuráð ræðir Þorláksbúð
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Innlent Kærðu byggingarleyfi Þorláksbúðar
- Þriðjudagur, 8. nóvember 2011, Innlent Þorláksbúðarfélagið fékk byggingarleyfi síðasta föstudag
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































