Opnaði Sigríðarstíg við Gullfoss
Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, opnaði í gær við Gullfoss fræðslustíg sem kenndur er við Sigríði í Brattholti. Á Sigríðarstíg eru fjölmörg upplýsingaskilti um fossinn og Sigríði í Brattholti og baráttu hennar fyrir verndun þessarar náttúruperlu.
Með umbótum sem gerðar hafa verið á aðgengi ferðamanna að undanförnu við Gullfoss undir umsjón Umhverfisstofnunar og opnun Sigríðarstígs verða upplýsingar aðgengilegar öllum, allt árið um kring á fjórum tungumálum, að því er segir í fréttatilkynningu.
Sigríður Tómasdóttir fæddist þann 24. febrúar 1871 í Brattholti og lést árið 1957. Auk almennra bústarfa og leiðsagnar með ferðamenn að Gullfossi, lagði hún stund á hannyrðir og teikningu. Þekktust er hún hins vegar fyrir ómetanlega baráttu í þágu náttúruverndar og þá sérstaklega baráttuna fyrir verndun Gullfoss.
Gullfoss og næsta nágrenni vestan Hvítár var friðlýst árið 1979 og er svæðið einn fjölsóttasti áningarstaður ferðamanna hér á landi.
Í skýrslu sem Umhverfisstofnun tók nýlega saman að beiðni umhverfisráðuneytisins kom fram að ástand margra vinsælla áningarstaða ferðamanna væri slæmt. Í kjölfar skýrslunnar óskaði umhverfisráðherra eftir fjármagni til framkvæmda á friðlýstum svæðum og samþykkti ríkisstjórnin í vor að veita 41,9 m. kr. til brýnna verkefna, m.a. til að viðhalda verndargildi svæðanna.
Stór hluti þessa viðbótarframlags, 17,5 m. kr., hefur farið til brýnna framkvæmda við Gullfoss, s.s. stækkunar útsýnispalls, nýs göngustígs á neðra plani til að bæta aðgengi fyrir fatlaða og nauðsynlegs frágangs á helstu göngusvæðum við fossinn. Til grannsvæðisins Geysis í Haukadal renna 3,3 m. kr. til brýnna framkvæmda.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 3. maí 2011, Innlent Brugðist við fjölgun ferðamanna
- Föstudagur, 10. júní 2011, Innlent Dimmuborgir og Hverfjall friðlýst
- Fimmtudagur, 23. júní 2011, Innlent Stærsta skemmtiferðaskipið
- Mánudagur, 14. nóvember 2011, Innlent Engin umsagnanna um drögin kom á óvart
- Þriðjudagur, 15. febrúar 2011, Innlent Friðlýsa búsvæði tjarnaklukku
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































