Fyrrum starfsmenn banka stuðluðu að vexti
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í samtali við bandarísku sjónvarpsstöðina CNBC, að hæfileikaríkt fólk sem starfaði í bankakerfinu hefði farið til starfa á nýjum sviðum og það hefði átt sinn þátt í að hjálpa Íslandi út úr kreppu.
Ólafur Ragnar ræddi við Maríu Bartiromo, fréttamann CNBC, um endurreisn efnahagslífsins á Íslandi, aðgerðir í ljósi ákvarðana annarra ríkja, alþjóðlega fjárfestingu og hvernig nýting hreinnar orku hefur skapað viðspyrnu á erfiðum tímum.
Ólafur Ragnar sagði að Íslendi hefði gengið betur að vinna sig út úr kreppunni en nokkur hefði átt von á og Ísland væri áhugavert dæmi um hvernig lönd sem lent hefðu í miklum efnahagslegum erfiðleikum gætu á tiltölulega skömmum tíma unnið sig út úr vandanum.
Ólafur Ragnar sagði að það sem hefði skipt máli fyrir endurreisn Íslands væri að stofnaðir hefðu verið nýir bankar og almenningur í landinu hefði ekki verið gerður ábyrgur fyrir skuldum einkabankanna. Eins hefði lækkun á gengi krónunnar hjálpað íslenskum fyrirtækjum að ná viðspyrnu á ný. Samhliða þessu hefðu íslensk stjórnvöld staðið fyrir umbótum á stjórnkerfinu og það væri mikilvægt að gera það en einblína ekki bara á efnahagsmálin.
Ólafur Ragnar sagði að þegar þenslan var sem mest hjá bönkunum hefðu þeir ráðið til sín fjölda sérfræðinga á ýmsum sviðum, verkfræðinga, tölvufræðinga og fleiri. „Eftir hrunið gátu lítil og meðalstór fyrirtæki skyndilega valið úr stórum hópi sérfræðinga sem störfuðu hjá bönkunum. Þetta eru fyrirtæki í upplýsingatækni, framleiðslu og hátækni. Sum þessara fyrirtækja hafa tvöfaldað starfsmannafjölda á síðustu tvö árum,“ sagði Ólafur Ragnar og sagði að þetta væri ein af ástæðum þess að Ísland hefði náð að vinna sig út úr kreppunni.
Bloggað um fréttina
-
-
Ásdís Sigurðardóttir Forsetinn kemur mér oft til að brosa............... -
Haraldur Haraldsson Stuðluðu að vexti eftir kreppu/ þarf ekki einkver að segja ... -
Svanur Gísli Þorkelsson Kreppan er liðin hjá, segir Ólafur Ragnar -
Guðni Karl Harðarson Yfirlýsingagleðin allsráðandi? -
Valdimar Samúelsson Er þetta ekki það sem þarf. Við þurfum mann eins ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. nóvember 2011, Innlent Fylgjumst með þróuninni í Evrópu
- Sunnudagur, 20. febrúar 2011, Innlent Forsetaembættið sannreyndi undirskriftir
- Laugardagur, 5. febrúar 2011, Innlent Leyfðum bönkunum að falla
- Föstudagur, 28. janúar 2011, Innlent Efnahagsbatinn fram úr væntingum manna
- Föstudagur, 11. maí 2012, Innlent Ólafur Ragnar: Lýðræðiskrísa, ekki efnahags
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































