Braust inn í tölvu blaðamanns

Sjálfsævisaga Assanges í bókabúð í Lundúnum. stækka

Sjálfsævisaga Assanges í bókabúð í Lundúnum. Reuters

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, segir frá því í nýútkominni sjálfsævisögu, sem raunar er gefin út án hans samþykkis, að íslenskur fyrrum samstarfsmaður hans hafi brotist inn í tölvu bresks blaðamanns og þurrkað út gögn sem blaðamaðurinn hafði fengið. 

Fjallað er um málið á tæknifréttavefnum Wired.com í dag. Þar segir, að um sé að ræða bandaríska blaðakonu, sem heitir Heather Brooke og starfar hjá breska blaðinu Independent. Hún fékk afrit af bandarísku sendiráðspóstunum 250 þúsund, sem WikiLeaks hóf að birta í nóvember á síðasta ári, upphaflega í samvinnu við nokkra evrópska og bandaríska fjölmiðla.

Brooke fékk afritið hjá Smára McCarthy í byrjun haustsins 2010 en þá hafði Assange ákveðið að gefa breska blaðinu Guardian og nokkrum öðrum fjölmiðlum einkaaðgang að gögnunum. Assange vissi ekki af þessum leka fyrr en ritstjórar Guardian sögðu honum af því á hitafundi þar sem fjallað var um hvernig birta ætti gögnin.   

„Ég rannsakaði málið," segir Assange í bókinni. „Það kom í ljós að íslenskur félagi okkar, Smári McCarthy, hafði vissulega deilt efninu með blaðamanni Independent þegar hann var undir miklu álagi. Hann hafði verið beðinn um að vinna við sendiráðsskeytin í stuttan tíma og forsníða þau en, vegna mikils vinnuálags, hafði hann látið hana fá aðgang að skeytunum - í þeirri von að fá aðstoð  - undir tilteknum ströngum skilyrðum. Hann braust síðan inn í tölvuna og þurrkaði skeytin út en það kom aldrei í ljós hvort (blaðakonan) hefði afritað þau eða ekki."

Wired segir, að Brooke hafi raunar þegar afritað skjölin á annan netþjón þegar þarna var komið sögu og því var hafi tölvuinnbrotið verið tilgangslaust.  Smári, sem hætti störfum hjá Wikileaks á síðasta ári, viðurkenndi í samtali við Wired að hann hefði eytt skránum af netþjóni Brooke en segir að hún hafi gefið honum leyfi til þess að fara inn í tölvukerfi hennar gegnum netið. Hún hafi þó ekki leyft honum að eyða gögnunum.

Smári segist hafa brugðist of hart við þegar WikiLeaks-menn fengu vitneskju um að hann hefði veitt Brooke aðgang að skjölunum. Hann hafi gert þetta mál upp við Brooke síðar.

Brooke fjallar sjálf um málið í nýlegri bók sinni, The Revolution Will Be Digitized. Segir hún að Smári, sem raunar er ekki nefndur í bók Brooke, hafi sagt sér að hann hafi eytt skjölunum vegna þess að hann væri undir miklu álagi og óttaðist um öryggi sitt.   

Wired segir, að þetta sé ekki í fyrsta skipti, sem blaðamenn hafi sakað starfsmenn WikiLeaks um tölvuinnbrot. Fyrr á þessu ári hafi bæði New York Times og Guardian lýst grunsendum um að Assange eða einhver tengdur WikiLeaks hefði brotist inn í tölvupósta blaðamanna á þessum blöðum.

Umfjöllun Wired.com

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinsti grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »
Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TILBOÐ TILBOÐ
TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korks...
Mitsubishi Galant (ES
Mitsubishi Galant (ES) 2001 árgerð Ekinn ca 11000 mílur (176þús km) Slagrými ...
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
TVÖ BARNAHJÓL 12"OG16" TIL SÖLU
ER MEÐ 2STK BARNAHJÓL ÓSKA EFTIR TILÐOÐI SÍMI 869-2798...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...