Skuldbindingar séu rétt færðar til bókar

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi. stækka

Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi.

Ríkisendurskoðun telur að ef ríkið ákveður að ráðast í byggingu hjúkrunar­heimila beri stjórnvöldum að tryggja að skuld­bindingar ríkisins verði sýndar með réttum hætti í ríkisreikningi.

Ríkisendurskoðun sendi í dag frá sér fréttatilkynningu vegna fjölmiðlaumfjöllunar um meðferð samninga um byggingu hjúkrunarheimila í bókhaldi ríkisins. 

Í tilkynningunni segir að í efnahagsreikningi ríkissjóðs, sem er hluti ríkisreiknings, skuli  birta með heildstæðum hætti upplýsingar um allar skuldir ríkissjóðs. Þetta stuðli að því að Alþingi, stjórnsýslan, fjárfestar og almenningur hafi glögga yfirsýn um fjárhagslega stöðu og styrk ríkisins.

 „Tíðkast hefur að ríki og sveitarfélög geri samninga um leigu til langs tíma á svokölluðum varanlegum rekstrarfjármunum, t.d. húsnæði og búnaði, þar sem gert er ráð fyrir að andvirði eignanna sé í raun greitt upp á samningstímanum. Slíkir samningar nefnast fjármögnunarleigusamningar og ber samkvæmt gildandi reikningsskilareglum að sýna þá í bókhaldi ríkisins með sama hætti og ef ríkið hefði keypt viðkomandi eign og tekið til þess lán. Skuldbindingar vegna slíkra samninga ber með öðrum orðum að sýna í efnahagsreikningi ríkisins. Ekki er heimilt að gera leigusamninga til langs tíma án þess að skuldbindingar vegna þeirra komi þar fram.

Fyrirtæki og sveitarfélög færa varanlega rekstrarfjármuni til eignar og fyrna þá síðan árlega, hvort sem um er að ræða kaup eða fjármögnunarleigu. Gjaldfærslu er þannig dreift yfir notkunartíma eignanna. Taki þessir aðilar lán, hvort sem er beint eða í gegnum fjármögnunarleigu, eru þau færð til skuldar og síðan eru vextir færðir til gjalda á hverju ári. Í bókhaldi ríkisins er hins vegar annar háttur hafður á. Samkvæmt sérreglu í 14. gr. laga um fjárreiður ríkisins ber að færa varanlega rekstrarfjármuni aðila í svokölluðum A-hluta ríkissjóðs til gjalda á því reikningsári þegar skuldbindandi samningar um kaup á þeim eru gerðir. Þetta þýðir að ef ríkið gerir samning um fjármögnunarleigu á varanlegum rekstrarfjármunum ber að gjaldfæra þá að fullu þegar samningur er gerður. Jafnframt ber að sýna heildarskuldbindingu samningsins í efnahagsreikningi.

Ríkisendurskoðun telur að tímabært sé að samræma reglur um bókfærslu varanlegra rekstrarfjármuna hjá ríkinu þeim reglum sem sveitarfélög og fyrirtæki á almennum markaði fylgja. Stofnunin telur með öðrum orðum að eignfæra eigi í efnahagsreikningi ríkisins bæði þá fjármuni sem ríkið kaupir og leigir (til langs tíma) og fyrna þá á notkunartíma. Slíkt kallar hins vegar á að lögum um fjárreiður ríkisins verði breytt en stofnunin hefur lengi kallað eftir því. Fyrrnefnd sérregla 14. gr. laganna stendur hins vegar ekki í vegi fyrir því að skuldbindingar vegna leigusamninga séu sýndar í ríkisreikningi.

Haustið 2009 samþykkti ríkisstjórnin áætlun um byggingu hjúkrunarheimila með samtals 361 hjúkrunarrými í níu sveitarfélögum á árunum 2010–2013. Áætlaður kostnaður við framkvæmdir nemur um 9 milljörðum króna. Fram hefur komið að gert sé ráð fyrir að viðkomandi sveitarfélög annist hönnun og byggingu heimilanna í samræmi við viðmið velferðarráðuneytisins en að Íbúðalánasjóður láni til framkvæmdanna. Framkvæmdasjóði aldraðra eða velferðarráðuneytinu sé síðan ætlað að greiða húsaleigu næstu 40 ár til viðkomandi sveitarfélaga og reiknist hún sem ígildi stofnkostnaðar. Að mati Ríkisendurskoðunar ber að líta á leigusamning sjóðsins við sveitarfélögin sem fjármögnunarleigusamning milli ríkisins og þeirra.

Ríkisendurskoðun tekur ekki afstöðu til þeirrar ákvörðunar að ráðast í byggingu hjúkrunar­heimila né heldur til þess hvort rétt sé af ríkinu að fara fyrrnefnda leið við fjármögnun þeirra. Verði hún hins vegar farin ber stjórnvöldum að tryggja að skuld­bindingar ríkisins verði sýndar með réttum hætti í ríkisreikningi,“ segir í tilkynningunni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinsti grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »
Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.

Catalina er í fullu fjöri

17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944 - 1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í Þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem að hátíðin fer fram. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholtinu fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

„Ég reyni að lifa lífinu til fulls“

Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir.
13:40 Ótrúleg atburðarás réði því að Sigurbjörg Jóhanna Gísladóttir lifði af hjartastopp fyrir rúmu ári. Þá var hún einungis 17 ára. „Röð tilviljana réð því að ég lifði af þennan dag,“ segir hún meðal annars í viðtali í Sunnudagsmogganum. Meira »

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.
11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

„Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“

Frá Grundarfirði. Úr myndasafni.
12:50 Bæjarráð Grundarfjarðar segir það alvarlegt áfall að Landsbankinn hafi ákveðið að loka útibúi bankans á staðnum í ályktun sem samþykkt var samhljóða. Ákvörðunin sé ekki tekin vegna rekstrar útibúsins á Grundarfirði heldur vegna hagræðingar í heildarrekstri Landsbankans. Meira »

65 brautskráðir á Sauðárkróki

Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.
10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yaris T-Sport 2007!!!!
Ek. 64 þús. 17'' felgur. Filmur. Xenon. Nýir diskar og klossar. Eins og nýr! Mjö...
Silky Terrier strákar til sölu
Þrem bræðrum er óráðstafað úr þessu goti. Þeir eru heilsufarssk., örmerktir og ...
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsin...
Toyota Land Crusier 2008
Toyota Land Crusier 120 GX. Sjsk. Diesel. Ekinn 67.000, 2008 árgerð. Ásett ve...
 
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...