Lögreglumenn geta engu treyst

Lögreglumenn utan við húsnæði ríkissáttasemjara í gær.
Lögreglumenn utan við húsnæði ríkissáttasemjara í gær. mbl.is/Júlíus

Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, segir í pistli á vef sambandsins, að í ljós hafi komið í gær að lögreglumenn geti héðan í frá engu treyst sem komi frá stjórnvöldum þessa lands og skilningur stjórnvalda á störfum þeirra sé enginn.

Í pistlinum spyr Snorri hver hefði trúað því að norræn velferðarstjórn, stjórn hinna vinnandi stétta, fyrsta hreina vinstristjórnin frá stofnun lýðveldisins Íslands, hefði haft dug í sér til að lítilsvirða þá stétt, sem ætlað sé það hlutverk að halda uppi almannareglu í samfélaginu, stemma stigu við afbrotum og upplýsa þau afbrot sem kunni að vera framin, líkt og sást við uppkvaðningu gerðardóms í kjaradeilu lögreglumanna við ríkisvaldið í gær.

Niðurstaða gerðardómsins var að lögreglumenn fái 4,25% launahækkun líkt og samið var um í vor á hinum almenna vinnumarkaði, auk þrettán þúsund króna hækkunar á álagsgreiðslu.

Snorri segir, að lögreglumenn muni nú nota næstu daga til að fara yfir þá stöðu sem upp sé komin og í kjölfarið endurmeta stöðu sína gagnvart ríkisvaldinu, sem hafi farið fram með offorsi, yfirgangi og valdboði gegn stéttinni.

„Lögreglumenn eru seinþreyttir til vandræða, það sanna dæmin, en lengi má manninn reyna!!  Lögreglumenn hafa verið reyndir um of og hafa einfaldlega fengið mikið meira en nóg," skrifar Snorri.

Á þriðjudaginn munu formenn lögreglufélaga og stjórn LL funda um niðurstöðu gerðardómsins og ákveða til hvaða aðgerða verður gripið í framhaldinu. Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.

Heimildarmaður Morgunblaðsins innan lögreglunnar segir að færst geti í aukana að hraustir lögreglumenn hringi og tilkynni sig veika í næstu viku og veikindin geti jafnvel teygst fram á laugardag, þegar Alþingi verður sett. „Menn eru farnir að kenna sér ýmissa krankleika,“ segir hann.

Pistill Snorra Magnússonar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert