Manngerðir skjálftar á Hellisheiði auka álag og trufla vöktun vegna Kötlu

Hellisheiðarvirkjun.
Hellisheiðarvirkjun. mbl.is/RAX

Á annað hundrað manngerðir jarðskjálftar urðu í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar í gær en undanfarnar vikur hefur Orkuveita Reykjavíkur dælt niður jarðhitavatni um borholur og hefur það valdið skjálftunum.

Stærstu jarðskjálftarnir mældust um 3 stig og bárust Veðurstofu Íslands tilkynningar frá fólki sem varð skjálftanna vart í Hveragerði og Mosfellsbæ.

Jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni segir manngerðu jarðskjálftana auka mjög álag á jarðskjálftamæla og hafa truflandi áhrif þegar verið er að greina upplýsingar tengdar raunverulegum skjálftum eins og verið hafa í Kötlu undanfarið.

Í gærmorgun varð skjálfti í Kötluöskju sem mældist 2,7 stig. Talsverð virkni hefur verið í eldstöðinni frá því að hlaup varð í Múlakvísl, sem rennur úr Mýrdalsjökli, og í Morgunblaðinu í dag segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur Kötlu vera í mjög órólegu ástandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert