Fær svar innan fárra vikna
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo segir í samtali við fréttavefinn China Daily í dag að hann eigi von á því að fá svar frá ríkisstjórn Íslands innan tveggja til þriggja vikna um hvort hann fær heimild til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Segir hann í viðtalinu að ef umsókn hans verði hafnað muni hann hætta við frekari fjárfestingar í Norður-Evrópu í framtíðinni þar sem hann hafi engin persónuleg tengsl við önnur ríki í N-Evrópu né heldur þekki hann löggjöf eða menningu annarra ríkja á svæðinu.
Hins vegar, ef íslensk stjórnvöld samþykkja umsókn hans, mun hann nýta eignarhaldsfélag sitt á Íslandi til fjárfestinga í öðrum ríkjum N-Evrópu.
Huang segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að kaup sín á Íslandi myndu vekja þá alþjóðlegu athygli sem raunin er. Allt hafi gengið vel á meðan hann var á Íslandi en við komuna til Kína á ný hafi ítrekað verið leitað til fyrirtækis hans um upplýsingar um hvort það sé einkafyrirtæki og hver tengslin við hið opinbera séu.
„Ef fyrirtæki mitt væri með tengsl við stjórnvöld hefði ég ekki selt prentvélar eða dúkkur eftir að ég hætti störfum hjá hinu opinbera,“ segir Huang í viðtali við Chinadaily. „Ef ég væri stjórnmálamaður myndi Forbes ekki setja mig á lista yfir milljarðamæringa því stjórnmálamenn rata aldrei inn á lista þeirra.“
Að sögn Huangs voru það vinir hans á Íslandi sem hvöttu hann til jarðarkaupa þar þar sem landið þyrfti á erlendri fjárfestingu að halda til að hleypa lífi í efnahagslífið. Ef samningurinn yrði að veruleika yrði hann stærsti samningur af þessu tagi á Íslandi í nokkur ár. Hann telur að það taki fyrir fjárfestinguna að skila hagnaði.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Ragnarsson Sama og um sjávarútvegsfyrirtæki ? -
Magnús Sigurðsson Er fósturjörðin til sölu fyrir eina tölu? -
Viggó Jörgensson Kínverska ríkið fær svar, þessi Huang Nubo er leppur. -
Haraldur Haraldsson Fær svar innan fárra vikna/Auðvitað ber að svara þessu ,það ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 19. desember 2011, Innlent Huang hefur enn áhuga á Íslandi
- Föstudagur, 4. maí 2012, Innlent Huang vill samning til 99 ára
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Tap fyrir Ísland og Kínverja
- Föstudagur, 11. nóvember 2011, Innlent Huang Nubo kveðst bjartsýnn
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Huang að kynna sér ákvörðunina
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































