Litlar væntingar meðal landsmanna

Væntingavísitala Gallup mælist nú 50,1 stig og er það lægsta gildi sem vísitalan hefur mælst á árinu og tæpum 20 stigum lægra en það var í ágúst í fyrra þegar hún náði sínu hæsta gildi frá hruni.

Er ljóst að íslenskir neytendur eiga langt í land með að vera bjartsýnir á horfur í efnahags- og atvinnumálum en sem kunnugt er mælir vísitalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífisins, og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir, segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.

„Þessi þróun væntingavísitölunnar kemur okkur ekki á óvart enda hefur mikið umrót verið á erlendum mörkuðum undanfarið og hefur talsverð umræða verið um það í fjölmiðlum. Eignaverð hefur lækkað, hagvöxtur hægt á sér og hagvaxtaspár verið lækkaðar fyrir öll helstu viðskiptalönd Íslands."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert