Lýsti yfir sakleysi fyrir dómi
Viggó Þór Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna (VSP), sem er ákærður fyrir stórfelld efnahagsbrot í starfi lýsti sig saklausan af ákærunni við þingsetningu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Hefur málflutningi verið frestað til 15. nóvember og mun Viggó þá leggja fram greinargerð sína um málið.
Viggó er ákærður fyrir að hafa í október og nóvember 2006 og janúar, febrúar og mars 2007, sem framkvæmdastjóri VSP, stefnt fjárhagslegum hagsmunum fyrirtækisins í verulega hættu með því að misnota aðstöðu sína.
Rannsókn málsins hófst snemma árs 2007 vegna gruns um stórfelld efnahagsbrot Viggós í starfi. Brotin voru talin felast í útgáfu tilhæfulausrar ábyrgðaryfirlýsingar upp á 200 milljónir bandaríkjadala.
Til vara er Viggó ákærður fyrir tilraun til fjársvika með því að hafa með framangreindum hætti reynt að blekkja mögulega kaupendur skuldabréfanna og innlánsskírteinanna. Er þess krafist að hann verði dændur til refsingar og til greiðslu alls málskostnaðar.
Viggó var gert að sæta farbanni eftir að málið kom upp og var því ekki aflétt fyrr en Hæstiréttur felldi farbannið úr gildi 23 mánuðum síðar. Er enn um að ræða lengsta farbann sem nokkur maður hefur sætt hér á landi.
Málið þótti afar umfangsmikið og teygir anga sína til sex landa; Bretlands, Bandaríkjanna, Filippseyja, Kanada, Grenada og Austurríkis. Í greinargerð ríkislögreglustjóra sem fylgdi farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sagði að málið væri mjög alvarlegt og ábyrgðir gætu fallið á þrotabú Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, að minnsta kosti vegna 200 milljóna dollara.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. október 2010, Innlent Ekki víst að ákæra verði gefin út
- Miðvikudagur, 22. júní 2011, Innlent Ákærður fyrir stórfelld umboðssvik
- Föstudagur, 27. janúar 2012, Innlent Svikamylla án hliðstæðu
- Föstudagur, 9. mars 2012, Innlent Viggó áfrýjar dómnum
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent „Þetta var reyfarakenndur tími”
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri






































