Segja sig úr óeirðasveitinni

mbl.is/Júlíus

Lögreglumenn á Suðurnesjum samþykktu einum rómi að segja sig úr óeirðasveit lögreglunnar á Suðurnesjum, í  mótmælaskyni við nýlega niðurstöðu kjaradóms, á fjölmennum félagsfundi í dag.

Hjálmar Hallgrímsson hjá Lögreglufélagi Suðurnesja segir tuttugu og fjóra til tuttugu og  sex lögreglumenn frá Suðurnesjum sinna starfi í óeirðasveit lögreglunnar á Suðurnesjum.

„Þeir segja allir upp vegna úrskurðar gerðardóms,“ segir Hjálmar þar sem óeirðasveitin hafi ekki fengið neinn hljómgrunn hjá ríkinu sem hafi ekki viljað ræða hana, líkt og litið væri á sveitina eins og venjulega löggæslu. Hjálmar segist ekki vita hvort aðrar óeirðasveitir á landinu hafi ákveðið aðgerðir í kjölfar niðurstöðunnar.

Óeirðasveitin kom lögreglunni í Reykjavík til aðstoðar í mótmælunum við Alþingi í Reykjavík dagana eftir þingsetningu í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert