Ólíklegt að útboð hefðu skilað betri niðurstöðu
Embætti ríkislögreglustjóra segir að vandséð sé að samkeppnismarkaður sé til staðar fyrir þær tegundir af kylfum sem lögreglan hafi heimild til að nota. Því sé ólíklegt að útboð hefði leitt til betri niðurstöðu en þeirrar sem fékkst þegar búnaður fyrir lögreglumenn var keyptur á árunum 2008-2011.
Þá segir ríkislögreglustjóri að lögum samkvæmt sé stofnunum ríkisins ekki óheimilt að eiga viðskipti við fyrirtæki í eigu lögreglumanna eða tengdra aðila.
Ríkisendurskoðun benti á það í dag að löggæslustofnanir hefðu keypt vörur af fjórum fyrirtækjum í eigu lögreglumanna eða náinna venslamanna þeirra fyrir samtals rúmlega 91 milljón króna á fyrrgreindu tímabili.
Stofnunin sagði að í nær öllum tilvikum hefði verið um að ræða búnað vegna löggæslustarfa. Telur Ríkisendurskoðun að hluti þessara viðskipta hafi brotið í bága við lög um opinber innkaup. Samkvæmt þeim lögum ber að bjóða út öll kaup á vörum ef fjárhæðir viðskipta fara yfir tiltekin viðmiðunarmörk sem eru nú 6,2 milljónir króna. Ef fjárhæðir eru undir þessum mörkum ber að leita tilboða hjá sem flestum fyrirtækjum áður en kaup eru ákveðin.
Á vef ríkislögreglustjóra segir m.a. að embættið hafi með umburðarbréfi árið 2007 veitt heimild til notkunar á ákveðnum tegundum lögreglukylfa. „Vandséð er að samkeppnismarkaður sé til staðar fyrir þær tegundir af kylfum sem lögreglan hefur heimild til að nota. Því er ólíklegt að útboð hefði leitt til betri niðurstöðu," segir á vefnum.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. september 2011, Innlent Ekki nægar skýringar á öllu
- Fimmtudagur, 29. september 2011, Innlent Lögregluskólinn leitar skýringa
- Þriðjudagur, 27. september 2011, Innlent Lögreglan brýtur lög
- Miðvikudagur, 19. október 2011, Innlent Standa við yfirlýsingu um innkaup
- Föstudagur, 14. janúar 2011, Innlent Skiptar skoðanir lögfræðinga um Icesave
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































