Saga um flugu verðlaunuð
Bryndís Björgvinsdóttir hlaut í dag Íslensku barnabókaverðlaunin 2011 fyrir bók sínaFlugan sem stöðvaði stríðið.
Bókin fjallar um Kolkex, Hermann Súkker og Fluguna sem eru ósköp venjulegar húsflugur. Þær ákveða að flýja að heiman út af nýja rafmagnsflugnaspaðanum og leita uppi munkana góðu í Nepal sem aldrei gera flugu mein. Þá fer af stað atburðarás sem leiðir til þess að stríð hættir og fluga kemst á forsíðu blaðanna.
Flugan sem stöðvaði stríðið var valin úr fjölda handrita sem kepptu um Íslensku barnabókaverðlaunin 2011. Að mati dómnefndar er þetta merkileg saga sem tvinnar saman mikilvægan boðskap og dillandi skemmtilega frásögn. Söguhetjurnar séu óvenjulegar og veiti lesendum nýja sýn á hversdagslega hluti.
Bryndís Björgvinsdóttir var aðeins fimmtán ára gömul þegar hún sendi frá sér sína fyrstu bók með vinkonu sinni, Orðabelg Ormars ofurmennis, en Flugan sem stöðvaði stríðið er önnur bók Bryndísar. Bryndís er þjóðfræðingur að mennt og starfar m.a. við rannsóknarstörf og kennslu.
Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka var stofnaður 30. janúar 1985 í tilefni af sjötugsafmæli Ármanns Kr. Einarssonar rithöfundar (1915–1999). Að sjóðnum standa fjölskylda Ármanns, bókaútgáfan Vaka-Helgafell, nú innan vébanda Forlagsins, IBBY á Íslandi og Barnavinafélagið Sumargjöf. Fulltrúar þessara aðila skipa dómnefnd sem velur úr handritum en einnig eru í henni hverju sinni tveir grunnskólanemar, fulltrúar lesenda. Að þessu sinni komu þeir úr Rimaskóla í Reykjavík.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 25. janúar 2012, Innlent Páll og Guðrún Eva verðlaunuð
- Sunnudagur, 12. febrúar 2012, Innlent Fjöruverðlaun eftir viku
- Fimmtudagur, 8. desember 2011, Innlent Verðlaunuð fyrir að hreyfa sig
- Laugardagur, 30. apríl 2011, Innlent Erlingur E. Halldórsson verðlaunaður
- Miðvikudagur, 14. desember 2011, Innlent Svipta hulunni af tilnefningum
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































