Útvegsmenn vilja að fallið verði frá kvótafrumvarpi
Aðalfundur Útvegsmannafélags Vestfjarða skorar á ríkisstjórnina að draga til baka frumvarp til laga um breytingar á stjórn fiskveiða, sem lagt var fram á Alþingi í vor. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið hefur sent frá sér.
„Jafnframt skorar aðalfundurinn á stjórnvöld að hefja nú þegar vinnu við að útfæra tillögur sáttanefndar um samningaleið en hún felur í sér að gerðir verði langtímasamningar við sjávarútvegsfyrirtæki um nýtingu aflaheimilda og að áfram skuli byggt á aflamarki við stjórn fiskveiða.
Í greinargerð sérfræðihóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kemur fram að fyrirhugaðar breytingar muni hafa verulega neikvæð áhrif á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja, kjör fiskvinnslufólks og sjómanna. Sömu niðurstöðu er að finna í flestum umsögnum hagsmunaaðila um frumvarpið. Í sumum þeirra er beinlínis varað við því tjóni sem samþykkt frumvarpsins myndi hafa í för með sér.
Við breytingar á lögum um stjórn fiskveiða er nauðsynlegt að missa ekki sjónar á því markmiði að áfram verði rekinn hagkvæmur sjávarútvegur á Íslandi. Það er ein af frumforsendum þess að hægt sé að halda uppi góðum lífskjörum hér á landi. Fyrirliggjandi frumvarp gengur þvert á þau markmið.
Forvígismenn útgerðar og fiskvinnslu á Íslandi hafa án árangurs ítrekað leitað eftir viðræðum við stjórnvöld með það að markmiði að komast að samkomulagi og sátt um breytingar á fiskveiðistjórninni. Það frumvarp, sem nú liggur fyrir, getur ekki orðið grunnur að slíkri sátt,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 29. desember 2011, Innlent Gengið verði frá kjarasamningum við sjómenn
- Miðvikudagur, 11. maí 2011, Innlent Fagna breytingum á stjórn fiskveiða
- Fimmtudagur, 29. mars 2012, Innlent Ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka
- Fimmtudagur, 19. maí 2011, Innlent Frumvörpin lögð fram
- Föstudagur, 28. október 2011, Innlent Hvetja til að óvissu sé eytt
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































