Útboð ekki mögulegt

Ríkislögreglustjóri segir, að ekki hafi verið mögulegt að láta fara fram útboð vegna kaupa á gasi og öðrum óeirðabúnaði fyrir lögregluna vegna neyðarástands sem skapaðist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi.

Embætti ríkislögreglustjóra birti tilkynningu á vef sínum nú um hádegið og segist þar að sjálfsögðu sammála Ríkisendurskoðun um að innkaup eigi að bjóða út eða leita tilboða í samræmi við lög um opinber innkaup.

„Hinsvegar skal athygli vakin á því að innkaup á gasi og öðrum óeirðabúnaði fyrir lögregluna voru skyndiinnkaup vegna neyðarástands sem skapaðist í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi og ómögulegt að láta útboð fara fram undir þeim kringustæðum sem þá ríktu í þjóðfélaginu. Ríkislögreglustjóri ákvað að höfðu samráði við dómsmálaráðherra að leita allra leiða til að afla nauðsynlegs öryggis- og varnarbúnaðar fyrir lögregluna," segir á vef embættisins.

Lögreglan brýtur lög

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert