Álegg léttara en gefið var upp
Neytendastofa hefur gert könnun á þyngd forpakkninga unninna kjötvara og segir ljóst að herða verði eftirlit með forpökkuðum vörum á öllum sviðum markaðarins.
Skoðað var kjúklingaálegg, pylsur og skinka, alls 17 vörutegundir. Hjá þremur af fjórum íslenskum framleiðslufyrirtækjum, sem ekki nota svonefnt e-merki, voru frávik á raunmagni kjöts í umbúðunum meiri en leyfilegt er. Af 12 vörutegundum sem vigtaðar voru hjá þessum aðilum reyndust 6 vörutegundir eða 50% ekki standast kröfur.
Undirvigt mældist mest á vörum sem pakkaðar eru hjá Norðlenska matborðinu ehf., bæði í Goða- og Krónupylsum og í brauðskinku en einnig komu upp frávik hjá Sláturfélagi Suðurlands í 10 stk. pylsum og í pylsum frá Kjarnafæði.
Í könnuninni komu einnig fram vörur, sem vógu meira en gefið var upp á umbúðum. Í einu tilfelli reyndust allir pakkar sem vigtaðir voru vera með um 40% meira magni af áleggi en uppgefið var á umbúðunum. Neytendastofa segir, að samkvæmt reglum um þyngd á forpökkuðum vörum mega pökkunaraðilar hafa innihald þyngra en gefið er upp þannig að neytendur hljóti góðs af en þeir megi ekki hlunnfara neytendur.
Prófaðar voru fimm e-merktar vörutegundir frá þremur framleiðendum. Reyndist þyngd á vörunum miða við uppgefna þyngd á umbúðunum vera innan skekkjumarka samkvæmt reglum um e-merktar forpakkningar.
Neytendastofa segir þó ljóst, að kanna þurfi betur merkingar á e-merktum vörum, til dæmis varðandi nafn pökkunaraðila sem eigi að koma fram þar sem hann beri ábyrgð á pökkun og merkingum, svo sem um þyngd.
Neytendastofa segir, að á neytendamarkaði sé í sívaxandi mæli seldar forpakkaðar vörur sem ekki eru vegnar í viðurvist neytenda. Ábyrgð á vigt vöru sé hjá framleiðendum en þeim beri að tryggja að varan sé vegin á löggiltri vog og raunverulegt magn sé í samræmi við merkingar á umbúðum.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 30. september 2011, Innlent Kanna betur þyngd kjötvöru
- Miðvikudagur, 26. október 2011, Innlent Ekki réttar þyngdarupplýsingar á KEA skyri
- Mánudagur, 19. desember 2011, Innlent Glassúr-pakkningar alltaf léttari en leyfilegt er
- Fimmtudagur, 22. september 2011, Innlent Vankantar á notkun verðskanna
- Fimmtudagur, 1. mars 2012, Innlent Neytendastofa ætlar að mæla þyngd
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































